Fréttir

true

Tímabundnar hrókeringar í forstjórastöðum

Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra hefur sett Eydísi Líndal Finnbogadóttur, forstjóra Landmælinga Íslands, tímabundið í embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar Íslands, eða til eins árs. Eydís tekur við embættinu af Þorkeli Lindberg Þórarinssyni, sem hefur látið að störfum að eigin ósk og ákveðið að hverfa til síns fyrra starfs hjá Náttúrustofu Norðausturlands. Við embætti Eydísar hjá…Lesa meira

true

Nýjustu tölur um smit á Vesturlandi

Lögreglan á Vesturlandi var nú rétt í þessu að birta tölur um fjölda smitaðra og í sóttkví í landshlutanum. Miðað við tölur sem birtust í lok síðustu viku er veruleg fækkun í einangrun, en mikil fjölgun í sóttkví. Það skýrist einkum af því að í Grundarfirði eru tugir í sóttkví vegna smita sem komu þar…Lesa meira

true

ÍA tapaði gegn Fjölni

Fjölnir og ÍA mættust í Dalhúsum í Grafarvogi á föstudagskvöldið í 1. deild karla í körfuknattleik og lauk leiknum með öruggum sigri Fjölnis, 95:73. Það var rétt í byrjun fyrsta leikhluta sem ÍA náði að halda í við heimamenn en síðan skildu leiðir. Heimamenn voru komnir í 21:10 um miðjan fyrsta leikhluta og staðan var…Lesa meira

true

Góður árangur lyftingafólks frá Kraftlyftingafélagi Akraness

Bikarmót í klassískum kraftlyftingum fór fram laugardaginn 20. nóvember og átti Kraftlyftingafélag Akraness þar þrjá keppendur. Í kvennaflokki keppti Sylvía Ósk Rodriguez í -84 kg flokki kvenna. Hennar þyngstu lyftur voru 145 kg í hnébeygju, 82,5 kg í bekkpressu, 160 kg í réttstöðulyftu og samanlagður árangur 387,5 kg sem gefa 73,78 stig. Hún náði fram…Lesa meira

true

Matvælastofnun rannsakar blóðtöku úr fylfullum hryssum

Matvælastofnun hefur nú til rannsóknar myndband frá dýraverndarsamtökunum Animal Welfare Foundation/ Tierschutzbund Zürich sem sýnir myndbrot frá blóðtöku úr fylfullum hryssum. Verklag sem þar kemur fram virðist stríða gegn starfsskilyrðum starfseminnar sem eiga að tryggja velferð hryssnanna. „Matvælastofnun lítur málið alvarlegum augum,“ segir í tilkynningu. Eftirlit með blóðtöku úr fylfullum hryssum er áhættumiðað og í…Lesa meira

true

Skallagrímskonur töpuðu stórt fyrir Keflavík

Skallagrímur fékk lið Keflavíkur í heimsókn í Borgarnes í gærkvöldi í Subway deild kvenna í körfuknattleik og varð að sætta sig við sitt áttunda tap í röð í deildinni. Jafnræði var með liðunum í fyrsta leikhluta og munurinn fimm stig við flautið, 19:24. Keflavík náði að auka muninn aðeins meira í öðrum leikhluta og staðan…Lesa meira

true

Snæfell tapaði naumlega gegn Ármanni

Snæfell tók á móti Ármanni á laugardaginn í fyrstu deild kvenna í körfuknattleik og varð að lokum að sætta sig við þriggja stiga tap, 76:79. Snæfellskonur voru sterkari í fyrsta leikhluta og staðan 20:14 þeim í vil. Leikurinn þróaðist á svipaðan hátt í öðrum leikhluta, Snæfell var ávallt yfir og náði mest ellefu stiga forskoti…Lesa meira

true

Smitum að fjölga í Grundarfirði og brugðist við því

Í Grundarfirði er nú viðkvæm staða vegna fjölgunar Covid-19 smita undanfarna daga. Búist er við að staðfestum smitum muni fjölga. Allt skólahald er í dag með breyttu sniði og fjölmargir í sóttkví. Nú eru ellefu manns í einangrun og þar af tvö börn á grunnskólaaldri. 63 eru í sóttkví. Þetta kemur fram í tilkynningu frá…Lesa meira

true

Hyggilegt að hreinsa niðurföll og ræsi

Veðurstofan spáir suðvestlægri átt næsta sólarhringinn, 13 til 18 m/s, sumsstaðar mun hvassara á Norðurlandi og í Öræfum. Talsverð rigning á vesturhelmingi landsins, en úrkomulítið fyrir austan. Hiti 4 til 9 stig. Mun hægara og skúrir eða él V-til um kvöldið og kólnar. Í athugasemdum veðurfræðings segir að á morgun sé gert ráð fyrir suðvestan…Lesa meira

true

Skallagrímur lagði Sindra

Skallagrímsmenn lögðu í langferð austur á bóginn á föstudaginn þegar þeir léku gegn liði Sindra á Höfn í Hornafirði í 1. deild karla í körfuknattleik. Sindri var með tólf stig fyrir viðureignina og Skallagrímur sex þannig að þetta var mikilvægur leikur fyrir Skallagrím að koma sér í efri hluta deildarinnar. Mikil barátta var í byrjun…Lesa meira