Fréttir

true

Englaklæði saumuð í Borgarfirði á laugardaginn

Englaklæði er hópur á vegum styrktarfélagsins Gleym mér ei, félags sem er til staðar fyrir fólk sem missir barn á meðgöngu eða stuttu eftir fæðingu. Tilgangur hópsins er að taka brúðarkjóla og gera úr þeim klæði til að jarðsetja börn í. Hópurinn hefur haldið svokallaða saumadaga þar sem áhugasamir hittast og sauma saman, en vegna…Lesa meira

true

Magnús Þór er nýr formaður Kennarasambandsins

Magnús Þór Jónsson, skólastjóri í Seljaskóla og fyrrum skólastjóri Grunnskóla Snæfellsbæjar, hafði sigur í formannskjöri í Kennarasambandi Íslands. Úrslitin voru tilkynnt fyrr í dag. Magnús hlaut 41,6% atkvæða, Anna María Gunnarsdóttir varaformaður sambandsins varð önnur með 32,5%, Hanna Björg Vilhjálmsdóttir kennari í Borgarholtsskóla hlaut 16,2% og Heimir Eyvindarson deildarstjóri í Grunnskólanum í Hveragerði 8,3%. Rúmlega…Lesa meira

true

Undirbúningskjörbréfanefnd ætlar í aðra vettvangsferð

Undirbúningskjörbréfanefnd Alþingis hefur birt drög að málsatvikalýsingu sem nefndin hefur aflað sér vegna framkvæmdar alþingiskosninga í Norðvesturkjördæmi og talningu atkvæða. Í lýsingunni er farið í afar löngu máli yfir rannsókn nefndarinnar og þá sem tengdust framkvæmd kosninganna í kjördæminu. Drögin voru birt á vef Alþingis til að hlutaðeigandi gætu gert athugasemdir við það sem þar…Lesa meira

true

Staðkennsla hefst að nýju í FVA á morgun

Á morgun, miðvikudag, hefst staðkennsla að nýju í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi, en nemendur hafa verið í fjarnámi frá hádegi sl. fimmtudag. „Heimavistarbúar geta snúið aftur til herberga sinna í dag, kl 17. Sóttvarnaraðgerðir hafa verið hertar vegna fjölda smita síðustu daga og samkvæmt nýrri reglugerð er skylt að bera grímu á göngum skólans en…Lesa meira

true

Smitum heldur áfram að fjölga á Vesturlandi

Samkvæmt nýjum tölum Lögreglunnar á Vesturlandi hækkar enn tala smitaðra með Covid-19 í landshlutanum. Þeir eru nú 168 talsins og 203 eru að auki í sóttkví. Helsta breyting frá gærdeginum er sú að það fjölgar um 14 í einangrun á Akranesi og átta staðfest smit hafa verið greind í Grundarfirði, sem hafði um tíma verið…Lesa meira

true

Skallagrímur tapaði naumlega fyrir Hetti

Skallagrímsmenn lögðu í langferð í gær þegar þeir léku gegn liði Hattar frá Egilsstöðum í 1. deild karla í körfuknattleik. Ferðaþreytan kom aðeins við sögu í byrjun fyrsta leikhluta því Hattarmenn komust mest ellefu stigum yfir, 20:9, en Skallagrímur náði þó að klóra vel í bakkann seinni hlutann og staðan 22:18 eftir fyrsta leikhluta. Annar…Lesa meira

true

Veiran stígur niður fæti í Grundarfirði

Grundfirðingar hafa undanfarið alveg sloppið við covid-19 smit á svæðinu en í gær varð breyting þar á. Nú hafa nokkur smit verið staðfest og er það fólk komið í einangrun og fjölmargir að auki komnir í úrvinnslusóttkví. Til að mynda er leikskólinn Sólvellir lokaður í dag þar sem eitt tilfellið teygir anga sína þangað inn.…Lesa meira

true

Framkvæmdir að hefjast við Faxatorg á Akranesi

Síðdegis í dag eða fyrri hluta morguns verður umferð um Faxatorg á Akranesi takmörkuð. Ástæðan er sú að nú hefst vinna við tengingu nýrra lagna sem annars vegar liggja undir nýrri Faxabraut og hins vegar meðfram Þjóðbraut með tengingum við Dalbrautarreit. Hringtorgið verður á næstu vikum endurgert samhliða þessum lagnaframkvæmdum. Nú í fyrsta áfanga verður…Lesa meira

true

Íbúum á Vesturlandi fjölgaði um 320 síðustu tólf mánuði

Íbúum á Vesturlandi fjölgaði um 320 á tímabilinu 1. nóvemer 2020 til sama dags í ár. Hafa þeir í fyrsta skipti rofið 17 þúsund íbúa múrinn, eru nákvæmlega 17.025. Af einstökum sveitarfélögum fjölgaði hlutfallslega langmest í Helgafellssveit á Snæfellsnesi þar sem íbúafjöldinn hækkaði um 15, eða 21,5%. Þar búa nú 79. Það er jafnframt mesta…Lesa meira

true

Fyrstu kaupa íbúðir fjórum milljónum dýrari en fyrir ári

Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um fasteignaviðskipti á þriðja ársfjórðungi þessa árs. Seldar voru 1.562 fasteignir til þess hóps sem er að kaupa sína fyrstu fasteign á lífsleiðinni. Að meðaltali greiddu fyrstu kaupendur 45,4 milljónir króna fyrir 96,9 fermetra íbúð, eða sem nemur 469 þúsund krónum á hvern fermetra. „Í dag greiða fyrstu kaupendur að…Lesa meira