Englaklæði saumuð í Borgarfirði á laugardaginn

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Englaklæði er hópur á vegum styrktarfélagsins Gleym mér ei, félags sem er til staðar fyrir fólk sem missir barn á meðgöngu eða stuttu eftir fæðingu. Tilgangur hópsins er að taka brúðarkjóla og gera úr þeim klæði til að jarðsetja börn í. Hópurinn hefur haldið svokallaða saumadaga þar sem áhugasamir hittast og sauma saman, en vegna Covid hefur ekki verið haldinn saumadagur í nokkurn tíma. Næstkomandi laugardag, 13. nóvember, á loks að halda saumadag og að þessu sinni í samkomuhúsinu við Þverárrétt í Borgarfirði. Saumadagurinn er opinn öllum sem hafa áhuga á að taka þátt í þessu verkefni. Húsið verður opið frá kl. 10 til 16 og er fólki velkomið að stoppa stutt við eða jafnvel vera allan tímann. Þá er einnig hægt að koma og sækja efni og fá snið sent í tölvupósti svo hægt sé að sauma heima hjá sér. Er fólk beðið um að taka með sér saumavélar, skæri, tvinna og borða. Nánari upplýsingar um viðburðinn; Saumadagur Englaklæða á Facebook.",
  "innerBlocks": []
}
Englaklæði saumuð í Borgarfirði á laugardaginn - Skessuhorn