
Undirbúningskjörbréfanefnd á fundi í Borgarnesi. Ljósm. mm
Undirbúningskjörbréfanefnd ætlar í aðra vettvangsferð
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Undirbúningskjörbréfanefnd Alþingis hefur birt drög að málsatvikalýsingu sem nefndin hefur aflað sér vegna framkvæmdar alþingiskosninga í Norðvesturkjördæmi og talningu atkvæða. Í lýsingunni er farið í afar löngu máli yfir rannsókn nefndarinnar og þá sem tengdust framkvæmd kosninganna í kjördæminu. Drögin voru birt á vef Alþingis til að hlutaðeigandi gætu gert athugasemdir við það sem þar kemur fram. Einhver bið er enn á að vinnu nefndarinnar ljúki. Fundir hennar eru orðnir 24 talsins auk vettvangsferðar sem farin var í Borgarnes fyrir um þremur vikum. Formaður nefndarinnar, Birgir Ármannsson alþingismaður, sagði í viðtali við mbl.is 26. október að nefndin væri þá í lokasprettinum í gagnaöflun. Í viðtali við mbl.is í dag 9. nóvember segir Birgir hins vegar að hann geti ekkert fullyrt um hver staðan verði í lok þessarar viku. Hann tekur þó fram: „Við erum auðvitað að reyna að færa okkur í átt að niðurstöðu, en það er alveg ljóst að það eru þó nokkrar umræður eftir í nefndinni og ekki víst hvaða tíma það tekur.“\r\n\r\nNú þegar sex vikur eru liðnar frá kosningum kemur fram á visir.is að samkvæmt einum nefndarmanni væri nefndarfólk orðin nokkuð sannfært um að hún þurfi að fara í aðra vettvangsferð í Borgarnes því nýlega hafi hún fengið upplýsingar í hendur sem gefi tilefni til að skoða málið betur. Það er því ljóst að viku eftir viku er verið að lengja tímann sem þessi vinna tekur og óvíst með öllu hvenær niðurstaða fáist í þessari rannsókn.",
"innerBlocks": []
}