{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á morgun, miðvikudag, hefst staðkennsla að nýju í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi, en nemendur hafa verið í fjarnámi frá hádegi sl. fimmtudag. „Heimavistarbúar geta snúið aftur til herberga sinna í dag, kl 17. Sóttvarnaraðgerðir hafa verið hertar vegna fjölda smita síðustu daga og samkvæmt nýrri reglugerð er skylt að bera grímu á göngum skólans en heimilt að taka hana niður í kennslustofu. Gildir sú regla til 8. desember,“ segir í tilkynningu frá Steinunni Ingu Óttarsdóttur skólameistara.\r\n\r\nHún segir að allir helstu snertifletir í skólahúsnæðinu hafi nú verið sótthreinsaðir, kennslustofur, heimavist o.s.frv. „Munum að hafa ítrustu sóttvarnir í heiðri þegar við hittumst aftur; sápuþvo hendur, spritta snertifleti í kennslustofum og halda hæfilegri fjarlægð. Og halda sig heima ef lasleiki gerir vart við sig.“",
"innerBlocks": []
}
Staðkennsla hefst að nýju í FVA á morgun - Skessuhorn