{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Magnús Þór Jónsson, skólastjóri í Seljaskóla og fyrrum skólastjóri Grunnskóla Snæfellsbæjar, hafði sigur í formannskjöri í Kennarasambandi Íslands. Úrslitin voru tilkynnt fyrr í dag. Magnús hlaut 41,6% atkvæða, Anna María Gunnarsdóttir varaformaður sambandsins varð önnur með 32,5%, Hanna Björg Vilhjálmsdóttir kennari í Borgarholtsskóla hlaut 16,2% og Heimir Eyvindarson deildarstjóri í Grunnskólanum í Hveragerði 8,3%. Rúmlega 60% félagsmanna greiddu atkvæði, 6.676 af 11.068. Atkvæðagreiðslan hófst á mánudag fyrir viku og lauk klukkan tvö í dag. Formannsskipti í Kennarasambandinu verða á þingi þess í apríl á næsta ári. Magnús Þór tekur þá við embættinu af Ragnari Þór Péturssyni og verður fjórði formaður þess frá upphafi. Ruv.is greindi frá.",
"innerBlocks": []
}
Magnús Þór er nýr formaður Kennarasambandsins - Skessuhorn