Fréttir

true

Héldu málþing og atvinnusýningu í Hjálmakletti

Síðastliðinn laugardag stóð Rótarýklúbbur Borgarness fyrir atvinnusýningu í Hjálmakletti í Borgarnesi með þátttöku um þrjátíu fyrirtækja og stofnana. Dagskráin hófst að morgni með málþingi og pallborðsumræðum þar sem til umræðu var Matvælalandið Ísland – loftslagsmál og kolefnisspor út frá ólíkum vinklum. Frummælendur voru Guðmundur I. Guðbrandsson umhverfisráðherra, Haraldur Benediktsson alþingismaður, Kristján Oddsson bóndi á Neðra-Hálsi…Lesa meira

true

Kóvidbylgja hafin á Akranesi – „Lockdown“ í stofnunum bæjarins

Samkvæmt nýjum tölum frá Lögreglunni á Vesturlandi fjölgaði smituðum með Covid-19 á Akranesi um fimmtíu milli daga. Nú eru 109 í sóttkví og 75 í einangrun á Akranesi og því óhætt að segja að faraldur sé hafinn að nýju. Bæjaryfirvöld hafa ákveðið að bregðast við ástandinu og hafa í ljósi aðstæðna ákveðið að loka stofnunum,…Lesa meira

true

Bæjarstjóri og formaður í heimsóknum í fyrirtæki

Fyrstu þrjá dagana í þessari viku voru bæjarstjóri og formaður atvinnu- og nýsköpunarnefndar Stykkishólmsbæjar í heimsóknum á vinnustaði í Stykkishólmi. Tilgangur þeirra var að kynnast betur starfsemi fyrirtækja og stofnana í bænum auk fyrirliggjandi áskorana og tækifæra. „Tilgangur okkar er að Stykkishólmsbær geti enn betur stutt við hagsmuni atvinnulífsins í sinni stefnumótun og hagsmunagæslu, enda…Lesa meira

true

Sementsverksmiðjan býður samkeppnisaðila sínum sementsviðskipti

Sementsverksmiðjan hefur ákveðið að bjóða Aalborg Portland á Íslandi, samkeppnisaðila sínum á markaði, bein sementsviðskipti til að aðstoða félagið við að mæta þörfum viðskiptavina þess hér á landi í ljósi mikils skorts á sementi. „Sementsverksmiðjan telur sér fært að aðstoða með þessum hætti eftir að hafa leitað leiðbeininga hjá Samkeppniseftirlitinu,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækinu.…Lesa meira

true

Ljósmyndasýning Gunnars Freys í Snorrastofu

Í bókhlöðu Snorrastofu í Reykholti hefur verið opnuð ljósmyndasýning Gunnars Freys Gunnarssonar ljósmyndara. Í sýningarskrá segir: „Sýningin fjallar um þróun, um breytingu og flæði sem marka umskipti í hugmyndafræði nútímans – sýnir heim sem fer frá því að vera heltekinn af heimsfaraldri en stefnir til nýrra tímamóta. Myndirnar endurspegla sköpun, þróun og nýtt upphaf. Þær…Lesa meira

true

Biskup afhjúpaði söguskilti í Saurbæ

Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands afhjúpaði síðastliðinn miðvikudag söguskilti við Hallgrímskirkju í Saurbæ, á Hallgrímsmessu. Athöfnin hófst með ávarpi Lindu Bjarkar Pálsdóttur sveitarstjóra þar sem hún bauð gesti velkomna til að afhjúpa söguskiltið sem segir frá sögu Hallgrímskirkju, Hallgrími Péturssyni og konu hans, Guðríði Símonardóttur. Linda Björk sagði að skiltið væri fyrsti liður í verkefninu…Lesa meira

true

Bestu knapar ársins, ræktunarbú og gullmerki

Haustið er uppskerutími íþróttafélaga og þar á meðal hestamanna. Landssamband hestamanna veitti um liðna helgi viðurkenningar fyrir knapa ársins og keppnishestabú ársins 2021 á sérstakri verðlaunahátíð. Einnig veitti Meistaradeildin í hestaíþróttum efnilegasta knapa ársins viðurkenningu. Árni Björn Pálsson er knapi ársins 2021, Jakob Svavar Sigurðsson er íþróttaknapi ársins, Konráð Valur Sveinsson skeiðknapi ársins, Daníel Jónsson…Lesa meira

true

Bílalest með kennslustofur í Grundaskóla – Myndasyrpa

Eftir hádegi í dag voru fjórar færanlegar kennslustofur ásamt tengibyggingum fluttar frá byggingarstað á Smiðjuvöllum 22 á Akranesi og á lóð Grundaskóla. Til flutninganna þurfti fimm trailer flutningabíla frá Bifreiðastöð ÞÞÞ. Lögregla fór fyrir bílalestinni og stöðvaði umferð enda fylltu húsin út í göturnar á leið þeirra. Það er Trésmiðja Þráins Gíslasonar sem byggir kennslustofurnar.…Lesa meira

true

Rjúpnaveiðin byrjuð

„Við fórum nokkrir út á Mýrar og fengum sjö rjúpur. Það var mikið af fugli þar sem við vorum,“ sagði Jógvan Hansen söngvari sem var einn af þeim mörgu sem héldu til rjúpnaveiða frá hádegi á fyrsta veiðidegi á mánudaginn. Á Holtavörðuheiði voru margir tilbúnir um leið og mátti hefja veiðar, en mest var um…Lesa meira

true

Skallagrímur með sinn fyrsta sigur í vetur

Skallagrímur tók í gærkvöldi á móti Hrunamönnum frá Flúðum í 1. deild karla í körfuknattleik og fór leikurinn fram í Borgarnesi. Skallagrímur var fyrir leikinn án sigurs í deildinni á meðan Hrunamenn höfðu unnið tvo og tapað þremur. Heimamenn komu grimmir til leiks, komust í 7:0 og ljóst að þeir ætluðu að selja sig dýrt…Lesa meira