Bílalest með kennslustofur í Grundaskóla – Myndasyrpa

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Eftir hádegi í dag voru fjórar færanlegar kennslustofur ásamt tengibyggingum fluttar frá byggingarstað á Smiðjuvöllum 22 á Akranesi og á lóð Grundaskóla. Til flutninganna þurfti fimm trailer flutningabíla frá Bifreiðastöð ÞÞÞ. Lögregla fór fyrir bílalestinni og stöðvaði umferð enda fylltu húsin út í göturnar á leið þeirra. Það er Trésmiðja Þráins Gíslasonar sem byggir kennslustofurnar. Nú verður að sögn Þráins hafist handa við að koma kennslustofunum fyrir á lóð skólans og verða þær tilbúnar til notkunar í byrjun janúar. Meðfylgjandi myndir tók Finnbogi Rafn blaðamaður á Skessuhorni þegar lestin liðaðist fram hjá skrifstofu blaðsins.\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"large\" ids=\"48537,48538,48539,48540,48541,48542,48543,48544\"]",
  "innerBlocks": []
}
Bílalest með kennslustofur í Grundaskóla - Myndasyrpa - Skessuhorn