Ljósmyndasýning Gunnars Freys í Snorrastofu

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í bókhlöðu Snorrastofu í Reykholti hefur verið opnuð ljósmyndasýning Gunnars Freys Gunnarssonar ljósmyndara. Í sýningarskrá segir: „Sýningin fjallar um þróun, um breytingu og flæði sem marka umskipti í hugmyndafræði nútímans – sýnir heim sem fer frá því að vera heltekinn af heimsfaraldri en stefnir til nýrra tímamóta. Myndirnar endurspegla sköpun, þróun og nýtt upphaf. Þær eru teknar víða um land en nokkrar sýna nærtæk form og landslag af Austurlandi.“\r\n\r\n„Gunnar Freyr er fæddur og uppalinn í Danmörku en flutti til Íslands árið 2015 með þann draum að gera náttúruljósmyndun að atvinnu. Hann stundaði nám við Ljósmyndaskólann í Reykjavík árið 2016 og hefur síðan lagt rækt við ástríðu sína fyrir íslensku landslagi. Hann hefur starfað sem atvinnuljósmyndari síðustu fimm ár og hefur unun af að upplifa Ísland gegnum myndavélarlinsuna og deila þeirri upplifun með öðrum gegnum magnaðar ljósmyndir af landi og þjóð. Myndir Gunnars hafa birst víða um heim og ein af þeim viðurkenningum sem hann hefur hlotið er að vera norrænn sendiherra Canon.“\r\n\r\nSýningin verður uppi þangað til í byrjun ársins 2022, er sölusýning og allir velkomnir að líta við. Einnig er hægt að panta myndir af heimasíðunni Gunnars Freys; <a href=\"https://www.icelandicexplorer.com\">https://www.icelandicexplorer.com</a>",
  "innerBlocks": []
}
Ljósmyndasýning Gunnars Freys í Snorrastofu - Skessuhorn