
Jakob Svavar Sigurðsson er íþróttaknapi ársins 2021. Ljósm. LH.
Bestu knapar ársins, ræktunarbú og gullmerki
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Haustið er uppskerutími íþróttafélaga og þar á meðal hestamanna. Landssamband hestamanna veitti um liðna helgi viðurkenningar fyrir knapa ársins og keppnishestabú ársins 2021 á sérstakri verðlaunahátíð. Einnig veitti Meistaradeildin í hestaíþróttum efnilegasta knapa ársins viðurkenningu. Árni Björn Pálsson er knapi ársins 2021, Jakob Svavar Sigurðsson er íþróttaknapi ársins, Konráð Valur Sveinsson skeiðknapi ársins, Daníel Jónsson gæðingaknapi ársins, Guðmar Freyr Magnússon efnilegasti knapi ársins 2021 og Árni Björn Pálsson er kynbótaknapi ársins. Þá voru Þúfur í Skagafirði, bú þeirra Gísla Gíslasonar og Mette Mannseth, valið keppnishestabú ársins. Á verðlaunahátíð LH 2021 voru tveir félagsmenn sæmdir heiðursverðlaunum LH. Það eru þeir Halldór Halldórsson fyrrverandi formaður reiðveganefndar LH og Helgi Sigurðsson dýralæknir.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_48551\" align=\"alignleft\" width=\"189\"]<img class=\"wp-image-48551\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2021/11/Bestu-knapar-arsins-og-raektunarbu_2-600x418.jpg\" alt=\"\" width=\"189\" height=\"132\" /> Lárus Ástmar hlaut gullmerki LH. Til hægri er Stefán Logi Haraldsson og vinstri Óafur Þórisson. Ljósm. mv.[/caption]\r\n\r\nVið þetta má bæta að á formannafundi í Landssambandi hestamannafélaga nýverið var Lárus Ástmar Hannesson í Stykkishólmi sæmdur gullmerki LH fyrir aðkomu hans að félagsmálum hestamanna. Hann var eins og kunnugt er formaður LH í sex ár. Það var Guðni Halldórsson núverandi formaður LH sem nældi í hann merkinu.\r\n\r\n ",
"innerBlocks": []
}