Starfsfólk Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi kynnti helstu verkefni samtakanna í bás sínum. Ljósm. mm.

Héldu málþing og atvinnusýningu í Hjálmakletti

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Síðastliðinn laugardag stóð Rótarýklúbbur Borgarness fyrir atvinnusýningu í Hjálmakletti í Borgarnesi með þátttöku um þrjátíu fyrirtækja og stofnana. Dagskráin hófst að morgni með málþingi og pallborðsumræðum þar sem til umræðu var Matvælalandið Ísland - loftslagsmál og kolefnisspor út frá ólíkum vinklum. Frummælendur voru Guðmundur I. Guðbrandsson umhverfisráðherra, Haraldur Benediktsson alþingismaður, Kristján Oddsson bóndi á Neðra-Hálsi og Ragnheiður I. Þórarinsdóttir rektor Landbúnaðarháskóla Íslands. Ræddu þau þær áskoranir sem landsmenn og reyndar heimsbyggðin öll stendur frammi fyrir, ýmist út frá sjónarhóli stjórnvalda, bænda eða menntunar á sviði landbúnaðar og umhverfisfræði.\r\n\r\nEftir að málþingi lauk um hádegisbil var hægt að kaupa kraftmikla kjötsúpu hjá útskriftarnemendum Menntaskóla Borgarfjarðar sem nú safna fyrir Mexíkóferð í vor. Eftir það dreifðust gestir um sali skólans og ræddu við þá sem kynntu vörur og þjónustu í heimabyggð. Boðið var upp á söngatriði, vöfflusölu og fleira eftir því sem leið á daginn.\r\n\r\n<em>Sjá myndir frá deginum í Skessuhorni vikunnar.</em>",
  "innerBlocks": []
}
Héldu málþing og atvinnusýningu í Hjálmakletti - Skessuhorn