Agnes biskup við skiltið. Ljósm. vaks

Biskup afhjúpaði söguskilti í Saurbæ

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands afhjúpaði síðastliðinn miðvikudag söguskilti við Hallgrímskirkju í Saurbæ, á Hallgrímsmessu. Athöfnin hófst með ávarpi Lindu Bjarkar Pálsdóttur sveitarstjóra þar sem hún bauð gesti velkomna til að afhjúpa söguskiltið sem segir frá sögu Hallgrímskirkju, Hallgrími Péturssyni og konu hans, Guðríði Símonardóttur. Linda Björk sagði að skiltið væri fyrsti liður í verkefninu „Merking sögu og merkisstaða í Hvalfjarðarsveit,“ sem leitt er af Markaðsstofu Vesturlands og unnið í samstarfi við Akraneskaupstað og Kjósarhrepp, en verkefnið felst í þróun ferðaleiða um Hvalfjörð og út á Akranes.\r\n\r\nVinna við verkefnið hófst á síðasta kjörtímabili en menningar- og markaðsnefnd Hvalfjarðarsveitar var einhuga um nauðsyn þess að merkja helstu sögu- og merkisstaði sveitarfélagsins og miðla þannig þekkingu, bæði til heimamanna og gesta. Við mótun verkefnisins voru margar leiðir ræddar og álit fengin frá sérfróðum aðilum en á núverandi kjörtímabili var ákveðið, að loknum fundi með Margréti Björk Björnsdóttur hjá Markaðsstofu Vesturlands, að nota skilti til þess að miðla þessum fróðleik.\r\n\r\nLinda Björg sagði einnig að menningar- og markaðsnefndin hefði leitað til íbúa Hvalfjarðarsveitar eftir tillögum að stöðum þar sem vert væri að setja upp skilti og hefðu viðbrögð íbúa verið mjög góð. Niðurstaðan varð sú að ákveðið hefði verið að skiltin yrðu tíu í núverandi áfanga. Eftir viðræður við formann sóknarnefndar Hallgrímskirkju var ákveðið að fyrsta skiltið yrði um Hallgrímskirkju í Saurbæ, Hallgrím Pétursson og Guðríði Símonardóttur. Linda Björk sagði að lokum að verkefnið nyti stuðnings frá Sóknaráætlun Vesturlands, styrktarsjóði EBÍ, Faxaflóahöfnum og Mjólkursamsölunni og kunni hún þeim bestu þakkir fyrir þeirra framlag. Þá færði hún einnig þeim sveitungum þakkir sem lagt hafa verkefninu lið við miðlun fróðleiks, yfirlesturs og ábendinga. Síðan mælti Agnes biskup nokkur orð, afhjúpaði skiltið og kór Saurbæjarprestakalls tók lagið.\r\n\r\nAð því loknu færðu gestir sig inn í kirkju og þar stjórnaði dagskránni séra Þráinn Haraldsson sóknarprestur. Séra Kristján Valur Ingólfsson, fyrrum vígslubiskup sagði frá því í stuttu máli þegar Hallgrímur Pétursson kom að Saurbæ. Kór Saurbæjarprestakalls undir stjórn Benedikts Kristjánssonar söng nokkra sálma séra Hallgríms við undirleik Bjarna Frímanns Bjarnasonar og fyrrnefndur Benedikt tenór flutti kirkjuljóð eftir Jón Leifs. Dagskránni lauk með því að biskup Íslands séra Agnes flutti bæn og blessun. Góð mæting sveitunga og gesta var á viðburðinn sem fram fór í góðu veðri og mæltist hann vel fyrir.",
  "innerBlocks": []
}
Biskup afhjúpaði söguskilti í Saurbæ - Skessuhorn