Frá skimunarstað á Akranesi, en þar hefur oft verið margt um manninn síðustu daga.

Kóvidbylgja hafin á Akranesi – „Lockdown“ í stofnunum bæjarins

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Samkvæmt nýjum tölum frá Lögreglunni á Vesturlandi fjölgaði smituðum með Covid-19 á Akranesi um fimmtíu milli daga. Nú eru 109 í sóttkví og 75 í einangrun á Akranesi og því óhætt að segja að faraldur sé hafinn að nýju. Bæjaryfirvöld hafa ákveðið að bregðast við ástandinu og hafa í ljósi aðstæðna ákveðið að loka stofnunum, þar sem fjöldi starfsmanna er smitaður eða í sóttkví. Bæjarráð Akraness tók ákvörðun í morgun, að á morgun, föstudaginn 5. nóvember, muni öll starfsemi falla niður í leikskólum, grunnskólum, tónlistarskóla og frístundastarfi á vegum bæjarfélagsins. Lágmarksstarfsemi verður í dag og eru foreldrar beðnir að sækja yngri börn sín í hádeginu í dag ef þeir hafa tök á því. Eldri börn verða send heim. Þá hafa allar æfingar hjá ÍA verið felldar niður til mánudags, hið minnsta.\r\n\r\nSmituðum í Borgarnesi fjölgar sömuleiðis lítillega milli daga, en þar eru nú 27 í sóttkví og 16 í einangrun. Fjöldi í einangrun á svæði heilsugæslustöðvarinnar í Búðardal er óbreyttur milli daga; 18 eru í einangrun en fjöldi í sóttkví er kominn niður í 9 manns.",
  "innerBlocks": []
}
Kóvidbylgja hafin á Akranesi – „Lockdown“ í stofnunum bæjarins - Skessuhorn