Þessir lentu í smá vandræðum á Holtavörðuheiði á mánudaginn. Ljósm. María Gunnarsdóttir

Rjúpnaveiðin byrjuð

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "„Við fórum nokkrir út á Mýrar og fengum sjö rjúpur. Það var mikið af fugli þar sem við vorum,“ sagði Jógvan Hansen söngvari sem var einn af þeim mörgu sem héldu til rjúpnaveiða frá hádegi á fyrsta veiðidegi á mánudaginn. Á Holtavörðuheiði voru margir tilbúnir um leið og mátti hefja veiðar, en mest var um veiðimenn frá Fornahvammi og upp í Bláhæð, en engir sjáanlegir ofan við það svæði. Þeir sem tíðindamaður Skessuhorns sá til fóru allir eftir reglum um veiðitíma. Smáföl var á heiðinni á mánudaginn. Bílvelta varð neðarlega á Holtavörðuheiðinni og rjúpnaveiðimenn lentu í vanda eftir að þeir fóru út af vegslóða en ekki urðu önnur teljandi óhöpp.",
  "innerBlocks": []
}
Rjúpnaveiðin byrjuð - Skessuhorn