Fréttir

true

Mikill fjöldi í sýnatöku á Akranesi

Covid faraldurinn er í mikilli uppsveiflu á Akranesi. Mikill fjöldi fólks var mættur í sýnatöku eftir hádegið í dag eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Náði röðin alla leið út á Dalbraut.Lesa meira

true

Kíkt í vinnuna til eigenda Borgarverks

Þegar Creditinfo birti í liðnum mánuði lista yfir fyrirmyndarfyrirtæki hér á landi vakti athygli að efst á lista yfir vestlensku fyrirtækin var Borgarverk í Borgarnesi, annað árið í röð. Þrátt fyrir að á þessum lista sé að finna ýmis öflug fyrirtæki m.a. í útgerð og fiskvinnslu, er fjölbreyttur annar rekstur sem fyrirtæki í fremstu röð…Lesa meira

true

Ríkið tekur yfir rekstur hjúkrunarheimilis í Stykkishólmi

Heilbrigðisstofnun Vesturlands mun taka yfir rekstur hjúkrunarheimilis í Stykkishólmi á næsta ári. Nú standa yfir framkvæmdir við nýtt hjúkrunarheimili við Austurgötu 7 í Stykkishólmi, í húsnæði Heilbrigðisstofnunar Vesturlands. Áætluð verklok eru 1. júní 2022 og flytja íbúar hjúkrunarheimilisins þá frá Dvalarheimili aldraðra í Stykkishólmi við Skólastíg 16 í nýtt hjúkrunarheimili við Austurgötu 7. Stjórnendur Dvalarheimilis…Lesa meira

true

Faraldurinn blossar upp á Akranesi

Þessa dagana eru miklar sveiflur á fjölda einstaklinga í sóttkví og einangrun á Vesturlandi. Lögreglan á Vesturlandi birti í morgun nýjar tölur yfir Covid-19 og samkvæmt þeim hefur orðið sprenging í fjölda á Akranesi. Alls eru 63 nú í sóttkví og 25 í einangrun. Einstaklingum í sóttkví fjölgar á Akranesi úr 9 í 63 og…Lesa meira

true

Skráning hafin fyrir Mannamót landshlutanna í janúar

Ákveðið hefur verið að ferðakaupstefnan Mannamót markaðsstofa landshlutanna snúi aftur í janúar. Viðburðurinn hefur skipað sess sem einn sá allra mikilvægasti í íslenskri ferðaþjónustu. Þar gefst samstarfsfyrirtækjum markaðsstofanna í öllum landshlutum tækifæri til að kynna sig fyrir fólki í ferðaþjónustu sem starfar á höfuðborgarsvæðinu og jafnvel koma á nýjum viðskiptasamböndum. Árið 2021 var Mannamóti frestað…Lesa meira

true

Tæknimessu frestað um áókveðinn tíma

Á morgun stóð til að um 800 grunnskólabörn af Vesturlandi færu á Akranes og tækju þátt í Tæknimessu í Fjölbrautaskóla Vesturlands, sem halda átti í samstarfi við SSV og iðnfyrirtæki á Vesturlandi. Í ljósi Covidfaraldurs sem nú hefur tekið sig upp á Akranesi hefur verið ákveðið að fresta Tæknimessu um óákveðinn tíma.Lesa meira

true

Frá Krabbameinsfélagi Borgarfjarðar

Aðalfundur Krabbameinsfélags Borgarfjarðar verður haldinn mánudaginn 8. nóvember kl. 20:00 í sal Brákarhlíðar í Borgarnesi. Á dagskrá fundar er heimsókn frá Unni iðjuþjálfara frá Ljósinu. Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þeirra. Loks eru venjuleg aðalfundarstörf. „Þar verða meðal annars ræddar breytingar á samþykktum félagsins í takt við…Lesa meira

true

Sala á Neyðarkallinum er fram undan

Dagana 4. til 7. nóvember munu björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar selja Neyðarkallinn um land allt. Neyðarkallinn í ár er sjóbjörgunarmaður, sem er vel við hæfi þar sem nýverið var skrifað undir samning um endurnýjun á björgunarskipum félagsins. Salan á Neyðarkallinum er ein stærsta fjáröflun björgunarsveitanna á landinu og því gríðarlega mikilvæg. M.a. verður hægt að nálgast…Lesa meira

true

Haustfundur atvinnuráðgjafa að hefjast

Haustfundur atvinnuráðgjafa hér á landi verður haldið í Stykkishólmi í dag og á morgun. Þar koma saman um 50 manns, starfsfólk Byggðastofnunar og ráðgjafar frá landshlutasamtökunum. Í dag verður hópurinn á ferðinni um Snæfellsnes þar sem heimsótt verða ýmis fyrirtæki eins og útgerð og fiskvinnsla Soffaníasar Cecilssonar, Frystiklefinn í Rifi, Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull og Bjarnarhöfn. Í…Lesa meira

true

UPPFÆRÐ FRÉTT um Tæknimessu í FVA

Uppfært: Skjótt skipast veður í lofti: Eftir að ljóst varð að nýr kórónaveirufaraldur er nú hafinn á Akranesi hefur Tæknimessu í FVA verið frestað um óákveðinn tíma. Upphafleg frétt: Tæknimessa verður haldin í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi í fjórða sinn á morgun, fimmtudag. Þá er nemendum í 8.-10. bekk af öllu Vesturlandi boðið í heimsókn…Lesa meira