Svipmynd frá Mannamóti í janúar 2019. Ljósm. mm.

Skráning hafin fyrir Mannamót landshlutanna í janúar

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Ákveðið hefur verið að ferðakaupstefnan Mannamót markaðsstofa landshlutanna snúi aftur í janúar. Viðburðurinn hefur skipað sess sem einn sá allra mikilvægasti í íslenskri ferðaþjónustu. Þar gefst samstarfsfyrirtækjum markaðsstofanna í öllum landshlutum tækifæri til að kynna sig fyrir fólki í ferðaþjónustu sem starfar á höfuðborgarsvæðinu og jafnvel koma á nýjum viðskiptasamböndum. Árið 2021 var Mannamóti frestað vegna heimsfaraldurs Covid-19, eins og svo mörgum öðrum stærri viðburðum. „Nú þegar ferðaþjónustan er aftur að komast á skrið er tilhlökkunin eftir því að hittast í Kórnum í Kópavogi í janúar orðin mikil og nú þegar hafa fjölmörg fyrirtæki og gestir skráð sig til þátttöku,“ segir í tilkynningu frá Markaðsstofu Vesturlands.\r\n\r\n<img class=\" wp-image-48516 alignleft\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2021/11/Skraning-hafin-fyrir-Mannamot-landshlutanna-i-januar_2-600x400.jpg\" alt=\"\" width=\"204\" height=\"136\" />Fyrirtæki frá Vesturlandi hafa ávallt fjölmennt á Mannamót og kynnt það sem er í boði í ferðaþjónustu á svæðinu. Undanfarin ár hafa færri sýnendur komist að en vilja og því mikilvægt fyrir samstarfsfyrirtæki að ganga frá sinni skráningu sem fyrst. „Sem fyrr segir verður sýningin haldin í Kórnum í Kópavogi, fimmtudaginn 20. janúar á milli 12 og 17. Enginn aðgangseyrir er fyrir gesti sem mæta á viðburðinn, en þeim er þó bent á að skrá sig áður en þeir mæta svo auðveldara sé að áætla fjölda gesta. Hægt er að skrá sig á <a href=\"http://www.markadsstofur.is\">www.markadsstofur.is</a> Nánari upplýsingar veitir verkefnastjóri markaðsmála hjá Markaðsstofu Vesturlands, Björk Júlíana Jóelsdóttir, <a href=\"mailto:bjork@west.is\">bjork@west.is</a>“",
  "innerBlocks": []
}
Skráning hafin fyrir Mannamót landshlutanna í janúar - Skessuhorn