{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Haustfundur atvinnuráðgjafa hér á landi verður haldið í Stykkishólmi í dag og á morgun. Þar koma saman um 50 manns, starfsfólk Byggðastofnunar og ráðgjafar frá landshlutasamtökunum. Í dag verður hópurinn á ferðinni um Snæfellsnes þar sem heimsótt verða ýmis fyrirtæki eins og útgerð og fiskvinnsla Soffaníasar Cecilssonar, Frystiklefinn í Rifi, Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull og Bjarnarhöfn. Í lok dags verður svo kvöldverður á Fosshóteli í Stykkishólmi. Á morgun verður haldinn fundur á Fosshóteli þar sem farið verður yfir byggðamál og nýsköpun. Þá verður farið í gönguferð um Stykkishólm og kíkt í heimsóknir í fyrirtæki.",
"innerBlocks": []
}
Haustfundur atvinnuráðgjafa að hefjast - Skessuhorn