{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Aðalfundur Krabbameinsfélags Borgarfjarðar verður haldinn mánudaginn 8. nóvember kl. 20:00 í sal Brákarhlíðar í Borgarnesi. Á dagskrá fundar er heimsókn frá Unni iðjuþjálfara frá Ljósinu. Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þeirra. Loks eru venjuleg aðalfundarstörf. „Þar verða meðal annars ræddar breytingar á samþykktum félagsins í takt við tímann og kynnt dagskrá vetrarins. Stjórn hvetur bæði félagsmenn og aðra áhugasama til að mæta og bæta í hugmyndabankann hvernig hægt sé að auka við þjónustu og dagskrá félagsins á svæðinu í þágu bæði krabbameinsgreindra og aðstandenda þeirra. Við veltum upp hvernig við getum bæði staðbundið og rafrænt aðstoðað og náð til fólks bæði í þéttbýli og til sveita sem glímir við krabbamein í sínu daglega lífi. Og hvað fólk vill almennt aðstoð með? Er það helst endurhæfing? Réttindamál? Námskeið? Spjöllum saman,“ segir í tilkynningu frá Krabbameinsfélagi Borgarfjarðar.",
"innerBlocks": []
}