
Heilbrigðisstofnun Vesturlands í Stykkishólmi. Ljósm. úr safni/ sá
Ríkið tekur yfir rekstur hjúkrunarheimilis í Stykkishólmi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Heilbrigðisstofnun Vesturlands mun taka yfir rekstur hjúkrunarheimilis í Stykkishólmi á næsta ári. Nú standa yfir framkvæmdir við nýtt hjúkrunarheimili við Austurgötu 7 í Stykkishólmi, í húsnæði Heilbrigðisstofnunar Vesturlands. Áætluð verklok eru 1. júní 2022 og flytja íbúar hjúkrunarheimilisins þá frá Dvalarheimili aldraðra í Stykkishólmi við Skólastíg 16 í nýtt hjúkrunarheimili við Austurgötu 7. Stjórnendur Dvalarheimilis aldraðra og stjórnendur HVE tilkynntu sínu starfsfólki nú á dögunum þá ákvörðun að HVE myndi taka við rekstri heimilisins við flutninginn, en Stykkishólmsbær rekur eins og kunnugt er hjúkrunarheimilið í dag. Samkvæmt samantekt um kostnað við rekstur heimilisins á árinu 2014-2020 greiddi Stykkishólmsbær 140 milljónir með rekstrinum. „Þessar tölur staðfesta að daggjöld frá ríkinu hafa ekki dugað til að standa undir kostnaði við reksturinn,“ segir Jakob Björgvin Jakobsson, bæjarstjóri Stykkishólmsbæjar í samtali við Skessuhorn.\r\n\r\nÁ Dvalarheimili aldraðra í Stykkishólmi eru í dag 15 hjúkrunarrými. Eftir færslu heimilisins verða hjúkrunarrými á hjúkrunarheimilinu 18. Spurður hvað verði gert við húsnæðið þar sem hjúkrunarheimilið er í dag segir Jakob að það verði nýtt til að efla enn frekar þjónustu við eldri borgara í Stykkishólmi. „Við skipuðum starfshóp sem er að endurskilgreina þörf fyrir aukið húsnæði og þjónustu við eldri borgara í Stykkishólmi. Eins og staðan er í dag er dvalarheimilið í miðjunni á milli búsetuíbúða fyrir aldraða. Þegar við höfum fært hjúkrunarrýmin getum við fjölgað búsetuíbúðum og vonandi byggt nýjan þjónustukjarna og jafnvel öflugri félagsaðstöðu fyrir eldri borgara, þar sem við getum sinnt þeirra þörfum betur,“ segir Jakob en bætir við að þetta eigi þó eftir að útfæra nánar.",
"innerBlocks": []
}