
Óskar Sigvaldason og Kristinn Sigvaldason eiga og reka Borgarverk. Ljósm. mm.
Kíkt í vinnuna til eigenda Borgarverks
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Þegar Creditinfo birti í liðnum mánuði lista yfir fyrirmyndarfyrirtæki hér á landi vakti athygli að efst á lista yfir vestlensku fyrirtækin var Borgarverk í Borgarnesi, annað árið í röð. Þrátt fyrir að á þessum lista sé að finna ýmis öflug fyrirtæki m.a. í útgerð og fiskvinnslu, er fjölbreyttur annar rekstur sem fyrirtæki í fremstu röð eru að stunda. Hér á Vesturlandi er annað jarðvinnuverktakafyrirtæki til að mynda búið að verma lista Creditinfo öll þau tólf ár sem viðurkenningar þessar hafa verið veittar, en það er Bjarmar ehf á Akranesi. Borgarverk flokkast með stórum fyrirtækjum og er í 92. sæti á landsvísu yfir árangur í rekstri og efnahag á síðasta ári. Framúrskarandi fyrirtæki eiga það sameiginlegt að vera stöðug fyrirtæki sem byggja rekstur sinn á sterkum stoðum og verða að uppfylla ströng skilyrði. Meðal annars að vera í efstu hæfisflokkum lánafyrirtækja, ársreikningi skal skila á réttum tíma, rekstrartekjur vera að lágmarki 50 milljónir króna síðustu þrjú ár, framkvæmdastjóri skráður í fyrirtækjaskrá RSK, rekstrarhagnaður, eða Ebita, þarf að hafa verið jákvæð síðustu þrjú ár, eiginfjárhlutfall a.m.k. 20% og eignir að minnsta kosti 100 milljónir króna síðustu þrjú ár.\r\n\r\nBlaðamaður Skessuhorns ákvað að fræðast nánar um rekstur Borgarverks og þá sem eiga og reka fyrirtækið í dag. Eigendurnir eru tveir; Kristinn Sigvaldason og Óskar Sigvaldason og fara með jafnan hlut hvor. Aðspurðir segja þeir að samkomulagið sé gott, verkaskiptin skýr, oft talast við í síma og því gangi samstarf þeirra vel. „Þetta gengur stóráfallalaust hjá okkur. Við kunnum að rífast, en að sama skapi að sættast,“ segja þeir og brosa. Auk þess segja þeir ómetanlegt að hafa gott fólk hvort sem er í lykilstöðum eða almenna starfsmenn sem margir hverjir hafa verið dyggir fyrirtækinu í áratugi. Nýtt skipurit var tekið í notkun fyrr á þessu ári og fjölgað var í hópi millistjórnenda.\r\n\r\nÞrátt fyrir að bera sama eftirnafn eru þeir Kristinn og Óskar ekki bræður. Kristinn á rætur vestur á Brúarhrauni en fór ungur að starfa hjá Vegagerðinni en síðar hjá Sigvalda Arasyni stofnanda Borgarverks í Borgarnesi. Óskar er hins vegar sonur Silla og hefur óslitið, ef frá eru talin ár við nám, starfað við fyrirtækið frá því hann var krakki. Hefur raunar aldrei verið á launaskrá hjá öðru fyrirtæki. Ungir fóru þeir Kristinn og Óskar að starfa saman. Tóku árið 1989 að sér snjómokstur fyrir Samskip í Reykjavík og eru enn með þann samning, en segjast gjarnan vilja fara að losna undan honum. Til að fræðast um fyrirtækið var slegist í för með Óskari Sigvaldasyni í eina dagsstund. Við mæltum okkur mót á skrifstofu hans í Mosfellsbæ, sest var upp í bíl og ekið sem leið lá yfir Hellisheiðina og austur á Selfoss. Þar bættist Kristinn í hópinn.\r\n\r\n<em>Sjá viðtal við Óskar og Kristinn í Skessuhorni sem kom út í dag.</em>",
"innerBlocks": []
}