Frá Tæknimessu í FVA árið 2019. Ljósm. úr safni/ arg

UPPFÆRÐ FRÉTT um Tæknimessu í FVA

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "<em><strong>Uppfært:</strong> Skjótt skipast veður í lofti: Eftir að ljóst varð að nýr kórónaveirufaraldur er nú hafinn á Akranesi hefur Tæknimessu í FVA verið frestað um óákveðinn tíma.</em>\r\n\r\n<em><strong>Upphafleg frétt:</strong></em>\r\n\r\nTæknimessa verður haldin í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi í fjórða sinn á morgun, fimmtudag. Þá er nemendum í 8.-10. bekk af öllu Vesturlandi boðið í heimsókn á Akranes þar sem þau fá kynningu á iðnnámi og afreksdeild FVA auk þess sem nokkur fyrirtæki kynna sína starfsemi fyrir ungmennunum. Þá fara þau að Grundartanga þar sem Ólafur Adolfsson, formaður stjórnar Þróunarfélags Grundartanga, tekur á móti hópnum og sýnir og segir frá starfsemi á svæðinu, en vegna Covid verður ekki hægt að fara inn á vinnustaðina. Þá verður farið með krakkana í Nýsköpunarsetrið á Breið þar sem þeim verður skipt í hópa og fá kynningu á starfsemi nokkurra fyrirtækja sem hafa þar aðstöðu. Í hádeginu mun Hugrún og hennar teymi í mötuneytinu í FVA elda lasagna fyrir þessa 800 nemendur sem væntanlegir eru í heimsókn",
  "innerBlocks": []
}
UPPFÆRÐ FRÉTT um Tæknimessu í FVA - Skessuhorn