{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Þessa dagana eru miklar sveiflur á fjölda einstaklinga í sóttkví og einangrun á Vesturlandi. Lögreglan á Vesturlandi birti í morgun nýjar tölur yfir Covid-19 og samkvæmt þeim hefur orðið sprenging í fjölda á Akranesi. Alls eru 63 nú í sóttkví og 25 í einangrun. Einstaklingum í sóttkví fjölgar á Akranesi úr 9 í 63 og í einangrun fjölgar úr 11 í 25. Alvarleg staða er komin upp í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Þar er smitrakning í gangi og búist við miklum fjölda í sýnatöku hjá Heilbrigðisstofnun Vesturlands í dag. Samkvæmt tilkynningu frá Fjölbrautaskólanum er smitið ekki upprunnið í skólanum en breiðist út um aldurshópinn sem þar er.\r\n\r\nVegna þessa hefur verið gripið til þess að nemendur og kennarar í dagskóla eru beðnir um að halda heim frá og með 11:35 í dag. Skipt verður yfir í fjarkennslu í dag, fimmtudag og föstudag. Munu kennarar láta nemendur vita nánar um skipulagið. Um helgina verður staðan tekin að nýju og öllum haldið upplýstum. Jafnframt eru þeir sem tóku þátt í fjölmennum viðburðum um nýliðna helgi beðnir um að taka hraðpróf. Finni einstaklingar fyrir einkennum eru þeir beðnir um að fara í einkennasýnatöku.\r\n\r\n<strong>Smit meðal starfsmanna á Höfða</strong>\r\n\r\nÁ Dvalarheimilinu Höfða á Akranesi hefur komið upp smit á meðal starfsmanna. Búið er að hafa samband við alla sem þurfa að fara í sóttkví. Þá er búið að láta þá vita sem ekki þurfa að fara í sóttkví en eiga að viðhafa smitgát. Í samráði við smitrakningateymi Almannavarna er deildin Innri Hólmur á Dvalarheimilinu komin í sóttkví. Heimsóknir eru bannaðar og enginn fer inn eða út af deildinni nema starfsmenn sem eiga þar vakt. Öll iðju- og sjúkraþjálfun fellur niður og engar heimsóknir eru leyfðar. Íbúar á Innri Hólmi mega hins vegar fara inn og út af deildinni í gegnum dyr í matsal. Þeir mega hins vegar ekki hitta neinn innan tveggja metra í göngunni. Þessar varúðarreglur gilda út komandi laugardag.\r\n\r\nÍ Búðardal fara tölur nú lækkandi. Í sóttkví fækkar úr 19 í 13 og í einangrun fækkar úr 24 í 18. Í Stykkishólmi og Grundarfirði er nú enginn í sóttkví eða einangrun. Í Borgarnesi fjölgar lítillega en þar fjölgar í sóttkví í dag úr 11 í 15 og í einangrun úr 8 í 14. Þá fjölgar einnig lítillega í sóttkví í Ólafsvík eða úr 11 í 13 en fjöldinn í einangrun þar stendur í stað eða þrír.",
"innerBlocks": []
}