
Eftir hádegi í dag voru fjórar færanlegar kennslustofur ásamt tengibyggingum fluttar frá byggingarstað á Smiðjuvöllum 22 á Akranesi og á lóð Grundaskóla. Til flutninganna þurfti fimm trailer flutningabíla frá Bifreiðastöð ÞÞÞ. Lögregla fór fyrir bílalestinni og stöðvaði umferð enda fylltu húsin út í göturnar á leið þeirra. Það er Trésmiðja Þráins Gíslasonar sem byggir kennslustofurnar.…Lesa meira








