Fréttir

true

Rjúpnaveiði hefst eftir helgi

Umhverfisráðherra hefur ákveðið fyrirkomulag rjúpnaveiða í ár en tímabilið hefst á mánudaginn, 1. nóvember og stendur út mánuðinn. Eins og áður verður aðeins heimilt að veiða frá föstudegi til þriðjudags, en veiði má ekki hefjast fyrr en á hádegi og er heimil á meðan það er bjart. Rjúpnastofninn hefur dregist saman síðustu ár og er…Lesa meira

true

Atvinnuleysi var 3,5% í september

Samkvæmt samantekt Hagstofunnar var árstíðaleiðrétt atvinnuleysi hér á landi 3,5% í september. Hefur það ekki verið lægra síðan í mars 2020 þegar það mældist 2,8%. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi lækkaði um 1,5 prósentustig á milli mánaða á meðan ársíðaleiðrétt hlutfall starfandi jókst um 0,4 prósentustig. Í september er áætlað að 26.200 einstaklingar hafi haft óuppfyllta þörf fyrir…Lesa meira

true

Gott fiskverð þegar menn komast á sjó

Fiskverð hefur verið í hæstu hæðum á fiskmörkuðum landsins síðustu vikur. Að sögn Andra Steins Benediktssonar, framkvæmdastjóra Fiskmarkaðs Snæfellsbæjar, er skýringin á þessu háa verði sú að miklar ógæftir hafa verið og lítið framboðs verið af fiski. Andri segir að þegar bátar hafa komist á sjó hafi aflinn verið góður og nefnir að línubátar hafa…Lesa meira

true

Aldís Ylfa ráðin aðstoðarþjálfari hjá ÍA

Knattspyrnufélag ÍA hefur ráðið Aldísi Ylfu Heimisdóttur sem aðstoðarþjálfara meistaraflokks kvenna og þjálfara 2. flokks kvenna. Aldís Ylfa sem er 25 ára hefur þjálfað í yngri flokkum félagsins í mörg ár og aðstoðað við þjálfun yngri landsliða. Aldís Ylfa er með KSÍ B þjálfaragráðu og sækir nú námskeið til KSÍ A réttinda. Hún mun því…Lesa meira

true

Freyja Þöll er nýr félagsmálastjóri í Hvalfjarðarsveit

Freyja Þöll Smáradóttir hefur verið ráðin nýr félagsmálastjóri í Hvalfjarðarsveit og hefur hún nú þegar tekið til starfa. Freyja er fædd og uppalin á Akranesi en á ættir að rekja í Hvalfjarðarsveit og á þaðan góðar minningar, úr sveitinni hjá ömmu. Freyja er gift Davíð Erni Gunnarssyni og saman eiga þau tvö börn, þriggja og…Lesa meira

true

H veitingar teknar við rekstri Food Station

Búið er að ganga frá samningi um rekstur veitingastaðarins Food Station við Digranesgötu 4 í Borgarnesi. Það er Hendrik Hermannsson eigandi H veitinga sem hefur tekið reksturinn á leigu af Kaupfélagi Borgfirðinga en eigandi hússins er Borgarland, dótturfélag KB. Margrét Katrín Guðnadóttir kaupfélagsstjóri fagnar samningnum og segir í samtali við Skessuhorn að aldrei hafi staðið…Lesa meira

true

Ruslatunnur á Akranesi fá nýtt útlit

Í tilefni Vökudaga fól Akraneskaupstaður nokkrum listamönnum á Akranesi að mála ruslatunnur að eigin vali, og má sjá þær núna á nokkrum stöðum á Akranesi. Fimm listamenn tóku áskoruninni og fengu frjálst val með sína list og óhætt að segja að vel hafi tekist til. Listamennirnir sem um ræðir eru þau Björn Lúðvíksson, Aldís Petra…Lesa meira

true

„Hef alltaf notið mín vel með prjónana“

„Hugmyndin að sýningunni varð til þegar Guðríður dóttir mín hvatti mig til þess að halda sýningu á handverki mínu í tilefni af 80 ára afmælinu mínu, sem var á síðasta ári, en Covid faraldurinn kom í veg fyrir að af sýningunni gæti orðið þá,“ segir Guðlaug Bergþórsdóttir hannyrðakona á Akranesi í spjalli við tíðindamann Skessuhorns.…Lesa meira

true

Knattspyrna rædd í fyrsta Karlakaffi Akraneskirkju

Síðasta miðvikudag var haldið svokallað Karlakaffi í Vinaminni á Akranesi, en það var á vegum Garða- og Saurbæjarprestakalls. Að sögn Þráins Haraldssonar sóknarprests er þetta tilraun til að fá fleiri karla í félagsstarf kirkjunnar og stefnan er að halda svona karlakaffi einu sinni í mánuði ef áhugi verður til staðar. Þá verður reynt að hafa…Lesa meira

true

Telja að takmarka verði aðgengi að orkudrykkjum

Áhættumatsnefnd hefur að beiðni Matvælastofnunar rannsakað hvort neysla orkudrykkja, sem innihalda koffín, hafi neikvæð áhrif á heilsu ungmenna í framhaldsskólum. Niðurstaða nefndarinnar er að neysla íslenskra ungmenna sé töluvert meiri en sést hefur í erlendum rannsóknum. Framboð, aðgengi og markaðssetning orkudrykkja hérlendis virðist skila sér í því að neysla íslenskra framhaldsskólanema sé meiri en æskilegt…Lesa meira