Guðlaug með tvo langömmuprinsa í fanginu, þá Magnús Karl og Hlyn Ágúst. Þeir eru báðir í peysum sem langamma prjónaði. Ljósm. Guðríður Sigurjónsdóttir.

„Hef alltaf notið mín vel með prjónana“

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "„Hugmyndin að sýningunni varð til þegar Guðríður dóttir mín hvatti mig til þess að halda sýningu á handverki mínu í tilefni af 80 ára afmælinu mínu, sem var á síðasta ári, en Covid faraldurinn kom í veg fyrir að af sýningunni gæti orðið þá,“ segir Guðlaug Bergþórsdóttir hannyrðakona á Akranesi í spjalli við tíðindamann Skessuhorns. „Guðríður hafði samband við Halldóru Jónsdóttur forstöðumann bókasafnsins á síðasta ári og tók hún vel í þessa hugmynd. Var því ákveðið að hafa sýninguna núna á Vökudögum í Bókasafni Akraness og verður hún opnuð föstudaginn 29. október klukkan 16 og verður svo opin á opnunartíma bókasafnsins.“\r\n\r\nGuðlaug segir að uppistaðan á sýningunni sé prjónaskapur, en einnig eru þar saumaðir dúkar og rúmföt. Dúkarnir eru meðal annars þeir sem hún gerði í barnaskóla og einnig aðeins af því handverki sem hún gerði þegar hún var nemandi í Húsmæðraskólanum á Varmalandi í Borgarfirði. „Ég kynntist fyrst handavinnu þegar ég var í barnaskóla í Leirársveitinni,“ segir Guðlaug sem er frá Súlunesi í Melasveit. „Ég byrjaði í farskólanum tíu ára og var eina barnið úr Melasveitinni sem var í farskólanum á þeim tíma. Ég fór oftast á bæi í Leirársveit þar sem börnum úr sveitunum var kennt. Var það misjafnt á hvaða bæ var kennt hverju sinni. Kennarinn okkar hét Pernille Guðrún Bremnes og bjó á Akranesi. Hún var afskaplega góður kennari og kenndi okkur meðal annars handavinnu. Þar byrjaði ég í útsaumnum og áhuginn kviknaði. Ég hef í gegnum tíðina alltaf haft eitthvað á prjónunum og notið mín vel í því. Ég hef verið að prjóna vettlinga og peysur. Þá hef ég mikið prjónað fyrir Handprjónasambandið. Einnig hef ég saumað mikið harðangur og klaustur og heklað milliverk í rúmfatnað fyrir fjölskylduna. Fyrir utan að prjóna fyrir Handprjónasambandið þá hef ég bara notið þess að prjóna á börnin mín, barnabörnin og þeirra börn.“ Guðlaug og eiginmaður hennar Sigurjón Hannesson eiga í dag átta barnabörn og fjögur langömmubörn.\r\n\r\nGuðlaug flutti á Akranes árið 1960 og starfaði fyrst hjá Pósti og Síma í um tvo áratugi. Var á skiptiborðunum, eða „miðstöð“ sem þá hét, og endaði síðan sem bréfberi þegar tæknin sló skiptiborðunum út. Eftir það hóf hún störf hjá Akraneskaupstað árið 1985 og starfaði allt til ársins 2008, eða í um 23 ár á símaskiptiborðinu og sem móttökuritari eins og það heitir í dag. Sá auk þess um ýmis önnur störf eins og m.a. að senda út gögn fyrir skrifstofuna. Eftir starfslok hefur Guðlaug svo tekið virkan þátt í félagsstarfi aldraðra og hannyrðunum að sjálfsögðu.",
  "innerBlocks": []
}
„Hef alltaf notið mín vel með prjónana“ - Skessuhorn