
Á morgun, fimmtudaginn 28. október, verður fyrstu lömbunum slátrað í nýju viðurkenndu örsláturhúsi Grímsstaðakjets ehf. á Grímsstöðum í Reykholtsdal. Hjónin Jóhanna Sjöfn Guðmundsdóttir og Hörður Guðmundsson keyptu Grímsstaðajörðina árið 2017 af foreldrum hennar og tóku um leið við sauðfjárbúi í fullum rekstri. Þau hófu fljótlega undirbúning að stofnun kjötvinnslu og sláturhúss. Árið 2020 var kjötvinnsluhúsið…Lesa meira








