Barnamenningarhátíð að hefjast á Akranesi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Barnamenningahátíð hefst á Akranesi á morgun, fimmtudag. Til stóð að halda hátíðina í apríl á þessu ári en henni var frestað vegna heimsfaraldurs. Vettvangur hátíðarinnar er bærinn allur og leitast er við að nýta spennandi og áhugaverð rými þar sem fjölbreyttir viðburðir fara fram um allan bæ. Það er Akraneskaupstaður í samstarfi við Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi sem standa fyrir barnamenningarhátíð fyrir börn og ungmenni á Akranesi dagana 28. október til 7. nóvember.\r\n\r\nAf viðburðum Barnamenningarhátíðar má nefna Fjölskyldusöngstund á Bókasafninu sem Skólakór Grundaskóla heldur nú í 10. skipti og tónleika í Tónbergi þar sem elsta deild leikskólans Vallarsels kemur fram. Sundlaugarpartý verður fyrir 5. til 7. bekk í Jaðarsbakkalaug á miðvikudagskvöld og opin dansæfing Brekkubæjarskóla á Bókasafninu á fimmtudag. Þá má ekki gleyma Ofurhetjumyndum Arnórs og teiknimyndasögum Bræðrabandalagsins í Tónlistarskólanum en Arnór Dagur er tæplega 11 ára gamall listamaður sem hefur gríðarmikinn áhuga á ofurhetjum og teiknimyndasögum.\r\n\r\nAllar nánari upplýsingar um dagskrá og viðburði Barnamenningarhátíðar er að finna í auglýsingu og dagskrá sem birtast í Skessuhorni sem kom út í dag, auk þess sem nánari upplýsingar um alla viðburðina er að finna á vefnum skagalif.is.",
  "innerBlocks": []
}
Barnamenningarhátíð að hefjast á Akranesi - Skessuhorn