Ólafur Darri Ólafsson var heiðursgestur á hátíðinni.

Að aflokinni Northern Wave hátíðinni í Rifi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Alþjóðlega stuttmyndahátíðin Northern Wave var haldin í þrettánda skiptið um síðustu helgi í Frystiklefanum á Rifi. Að sögn Daggar Mósesdóttur, stjórnanda hátíðarinnar, hefur aldrei áður verið boðið upp á jafn stóra tónleikaveislu en nú spiluðu bæði Reykjavíkurdætur og Vök. Fyrirtæki á svæðinu styrktu tónleikana og buðu bæjarbúum í Snæfellsbæ og Grundarfirði frítt á þá. Hátíðin hefur alltaf haft mikla tónlistartengingu en íslensk tónlistarmyndbönd eru í keppni á hátíðinni.\r\n\r\nÞað var því skemmtileg tilviljun að Reykjavíkurdætur báru sigur úr býtum fyrir besta tónlistarmyndbandið við lagið „Thirsty hoes“ í leikstjórn Þuríðar Blær Jóhannsdóttur sem er ein af Reykjavíkurdætrum. Besta alþjóðlega stuttmyndin var íranska stuttmyndin „Don't Tell Anyone“ eftir Sahar Sotoodeh, besta íslenska stuttmyndin var „Selshamurinn“ eftir Uglu Hauksdóttur og „Krepptur Hnefi“ eftir Loga Sigursveinsson fékk sérstaka viðurkenningu. Í dómnefnd voru leikarinn Ólafur Darri Ólafsson sem var jafnframt heiðursgestur á hátíðinni, handritshöfundurinn Ottó Geir Borg og Nanna Frank Rasmussen gagnrýnandi Politiken.\r\n\r\nBoðið var upp á sérstaka barnadagskrá um helgina m.a. með sundbíói í Sundlaug Ólafsvíkur, stuttmyndanámskeiði fyrir krakka og bíóplakatasmiðju í Frystiklefanum. Að auki var haldin norræn vinnusmiðja fyrir ungar norrænar kvikmyndagerðarkonur undir yfirskriftinni „Norrænar Stúlkur Skjóta.“",
  "innerBlocks": []
}
Að aflokinni Northern Wave hátíðinni í Rifi - Skessuhorn