
Hörður Guðmundsson og Jóhanna Sjöfn Guðmundsdóttir framan við nýja sláturhúsið. Ljósm. mm
Grímsstaðakjet byrjar sauðfjárslátrun á morgun
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á morgun, fimmtudaginn 28. október, verður fyrstu lömbunum slátrað í nýju viðurkenndu örsláturhúsi Grímsstaðakjets ehf. á Grímsstöðum í Reykholtsdal. Hjónin Jóhanna Sjöfn Guðmundsdóttir og Hörður Guðmundsson keyptu Grímsstaðajörðina árið 2017 af foreldrum hennar og tóku um leið við sauðfjárbúi í fullum rekstri. Þau hófu fljótlega undirbúning að stofnun kjötvinnslu og sláturhúss. Árið 2020 var kjötvinnsluhúsið byggt og síðasta haust var það tilbúið með viðeigandi leyfum til vinnslu. Nú hefur hefur verið byggt við kjötvinnsluhúsið aðstaða þar sem hægt er að slátra lömbum og geitum við viðurkenndar aðstæður. Öll tilskilin leyfi fyrir sauðfjárslátrun voru í höfn 6. október síðastliðinn. Til að þau fengjust þurfti meðal annars að afla réttinda til að aflífa og blóðga og sláturaðstaðan sömuleiðis að vera úr viðurkenndum efnum, svo sem ryðfríu stáli. Örsláturhús eru skilgreind þannig að leyfilegt er að slátra allt að 30 lömbum á dag en dýralæknir er ætíð viðstaddur, líkt og í öðrum sláturhúsum. Grímsstaðakjet er fyrsta viðurkennda örsláturhúsið á Vesturlandi, en fyrir er Sláturhús Vesturlands í Brákarey með mun víðtækara leyfi, en næsta sláturhús við það er alla leið norður á Hvammstanga eða austur á Selfossi. Næsta örsláturhús er hins vegar í Birkihlíð í Skagafirði.\r\n\r\n<em>Nánar er rætt við þau Hörð og Jóhönnu Sjöfn í Skessuhorni sem kom út í dag.</em>\r\n\r\n[caption id=\"attachment_48324\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-48324 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2021/10/Grimsstadakjet-faer-leyfi-til-saudfjarslatrunar_2-600x400.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"400\" /> Jóhanna Sjöfn hellir pækli yfir væntanlegt saltkjöt.[/caption]",
"innerBlocks": []
}