{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að haldi smitum áfram að fjölga á landinu sé enginn annar möguleiki í stöðunni en að leggja til hertar aðgerðir. Í gær greindust 84 kórónuveirusmit innanlands sem er mesti fjöldi smita sem greinst hefur í rúma tvo mánuði. Faraldurinn er því í miklum vexti innanlands.\r\n\r\nÞórólfur óttast mjög álag á Landspítalann þar sem róðurinn sé þungur núna þegar sóttvarnaaðgerðir njóti minni stuðnings í samfélaginu, þar á meðal lítils stuðnings ráðherra í ríkisstjórninni sem tala fyrir afléttingu allra hamla á sóttvarnir. Í viðtali við fréttavefinn Vísi segir Þórólfur í dag, aðspurður um stuðning ráðherra við sóttvarnir: „Ég nýt stuðnings míns ráðherra, en ríkisstjórnin heyrist mér ekki standa einhuga á bak við þetta.“\r\n\r\n<a href=\"https://www.visir.is/g/20212174931d/thorolfur-svartsynn-og-ekki-lengur-samstada-um-adgerdir\">Sjá nánar frétt á Vísi</a>",
"innerBlocks": []
}
Sóttvarnalæknir á öðru máli en ráðherrar - Skessuhorn