
Rut og Sigurborg Kristín í versluninni. Ljósm. vaks.
Litið við í verslun í 177 ára gömlu húsi í Ólafsvík
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Pakkhúsið í Ólafsvík er eitt af elstu húsum á Snæfellsnesi og á sér ríka sögu af kaupmennsku og verslun. Blaðamaður Skessuhorns var á ferðinni á dögunum á Snæfellsnesi og rak augun í þetta svarta fallega hús sem staðsett er í hjarta Ólafsvíkur. Hjónin Rut Ragnarsdóttir og Heimir Berg Vilhjálmsson reka þar í dag verslunina Útgerðina sem var opnuð árið 2019. Útgerðin er verslun sem selur íslenska hönnun í bland við sælkeravörur og aðrar sérvaldar hönnunarvörur. Rut stýrir skútunni alla daga og er með puttana í öllum þáttum en Heimir stekkur til og aðstoðar eftir þörfum. Í byrjun buðu þau upp á veitingar og kaffi samhliða verslunarrekstrinum en ákváðu eftir að Covid skall á að breyta til og einfalda reksturinn. Þá opnuðu þau vefverslun (utgerdin.shop) í fyrsta faraldrinum sem stækkaði fljótt og ljóst að staðsetning verslunar skiptir litlu máli í þeim efnum. Mest í vefversluninni er keypt af Íslendingum en oft er fólk sem kemur í búðina og pantar svo á netinu. Til dæmis var Rut að undirbúa sendingu til Tékklands þegar blaðamaður tók hana tali og spurði hana fyrst hvernig sumarið hefði gengið í versluninni.\r\n\r\n<em>Sjá nánar frásögn af heimsókninni í Skessuhorni sem kom út í dag.</em>\r\n\r\n<img class=\"alignnone size-medium wp-image-48303\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2021/10/„Afskaplega-anaegd-og-thakklat3-600x450.jpg\" alt=\"\" />",
"innerBlocks": []
}