Fréttir

true

Nýliða- og fræðslukvöld slökkviliðsins

Í kvöld klukkan 20 heldur Slökkvilið Borgarbyggðar kynningarkvöld um starfsemi slökkviliðsins. Fer það fram í slökkvistöðinni við Sólbakka í Borgarnesi. Allir áhugasamir eru hvattir til að láta sjá sig og kynna þér starfið. Ef áhugi er fyrir að sækja um inngöngu er sömuleiðis kjörið tækifæri til þess. Sjá nánar í meðfylgjandi auglýsingu.Lesa meira

true

ÍA enn án sigurs eftir fimm leiki

Skagamenn tóku á móti liði Hamars úr Hveragerði í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöldið. Jafnræði var með liðunum fyrstu mínúturnar en undir lok fyrsta leikhluta náði Hamar góðum kafla og var með átta stiga forystu, 19:27. Í öðrum leikhluta gerðu þeir enn betur, hittu vel og unnu annan leikhlutann með 12 stigum og…Lesa meira

true

Landinn farinn að ferðast

Heildar greiðslukortavelta í september síðastliðnum nam tæpum 94 milljörðum króna. Veltan dróst saman um 7,1% á milli mánaða en jókst um 32,5% samanborið við september 2020. Ferðahugur landans eftir afléttingu kórónaveiruhafta kemur skýrt fram í september gögnum Rannsóknaseturs verslunarinnar um innlenda kortaveltu. Erlend kortavelta hér á landi nam rúmum 18,5 milljörðum kr. í september sl.…Lesa meira

true

Skallagrímskonur með fimmta tapið í röð

Skallagrímur sótti lið Fjölnis í Grafarvogi heim í Subway deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Jafnt var á öllum tölum í fyrsta leikhluta, liðin skiptust á um að ná forystunni og staðan 24:23. Baráttan hélt áfram í öðrum leikhluta og aðeins munaði sex stigum þegar liðin fóru inn í hálfleikinn, 39:33. Fjölnir hélt hins vegar…Lesa meira

true

Stelpurnar í stelpuboltanum lögðu land undir fót

Í Grundarfirði hefur verið boðið uppá stelpuæfingar undanfarið sem hefur leitt af sér mikla aukningu í mætingu hjá stelpunum. Stelpurnar hafa verið duglegar að mæta og láta ljós sitt skína undir öruggri leiðsögn Halldóru Daggar Hjörleifsdóttur þjálfara. Margar þessara stelpna hafa ekki haft áhuga að mæta á blandaðar æfingar og finnst mun skemmtilegra að mæta…Lesa meira

true

SDS samþykkir sameiningu við Kjöl

Á aðalfundi Starfsmannafélags Dala- og Snæfellssýslu (SDS) sem haldinn var síðastliðinn fimmtudag í Grundarfirði og á fjarfundi, var borin upp tillaga um sameiningu félagsins við Kjöl stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu. Tillagan var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum og tekur sameiningin þegar gildi, en bókhaldsleg sameining verður um næstu áramót. Kjölur stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu er…Lesa meira

true

Söguskilti verður afhjúpað í Saurbæ

Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands mun næstkomandi miðvikudag klukkan 16:30 afhjúpa nýtt söguskilti við Hallgrímskirkju í Saurbæ, á Hallgrímsmessu. Að afhjúpun lokinni verður athöfn í kirkjunni. Á skiltinu er farið yfir sögu Hallgrímskirkju, Hallgríms Péturssonar og Guðríðar Símonardóttur. Þetta er fyrsti liður í verkefninu „Merking sögu og merkisstaða í Hvalfjarðarsveit“ en það er unnið í…Lesa meira

true

Viðurkenningar fyrir falleg hús og umhverfi á Akranesi – myndasyrpa

Síðastliðinn fimmtudag voru afhentar umhverfisviðurkenningar Akraneskaupstaðar fyrir árið 2021. Ákveðið var að hafa sama hátt á og í fyrra að fulltrúar úr Skipulags- og umhverfisráði fóru og afhentu viðurkenningar fyrir utan heimili fólks. Ragnar B. Sæmundsson bæjarfulltrúi og formaður nefndarinnar stýrði dagskrá, ásamt Guðríði Sigurjónsdóttur nefndarmanni og Sigurði Páli Harðarsyni sviðsstjóra. Þess ber að geta…Lesa meira

true

Óska eftir bakvörðum vegna smita í búsetuþjónustu

Á föstudagskvöldið fékk félagsþjónusta Borgarbyggðar staðfestingu á Covid-19 smitum í búsetuþjónustu og í hæfingarstaðnum Öldunni. „Vegna þessara smita fara flestir starfsmenn, leiðbeinendur og skjólstæðingar ýmist í sóttkví eða smitgát. Við erum búin að tryggja mönnun í dag og flestir sem eru í smitgát eða sóttkví munu komast í Covid-19 próf í dag,“ skrifaði Þórdís Sif…Lesa meira

true

Tuttugu í einangrun og 146 í sóttkví á Vesturlandi

Vaxandi fjöldi smitaðra er nú í einangrun með Covid-19 á Vesturlandi. Lögreglan á Vesturlandi er hætt að birta tölfræði skipt upp eftir heilsugæsluumdæmum, en vísar á Covid-19 vefinn. Þar má nú sjá að 20 manns eru í einangrun á Vesturlandi með Covid-19 og 146 í sóttkví. Á landinu öllu er 653 í einangrun og 1.418…Lesa meira