Fráfarandi stjórn SDS: Frá vinstri, Helga, Lilja, Kristjana og Guðrún Birna. Á myndina vantar Kristínu, Aðalstein og Jófríði.

SDS samþykkir sameiningu við Kjöl

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Á aðalfundi Starfsmannafélags Dala- og Snæfellssýslu (SDS) sem haldinn var síðastliðinn fimmtudag í Grundarfirði og á fjarfundi, var borin upp tillaga um sameiningu félagsins við Kjöl stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu. Tillagan var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum og tekur sameiningin þegar gildi, en bókhaldsleg sameining verður um næstu áramót.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_48236\" align=\"alignleft\" width=\"126\"]<img class=\"wp-image-48236\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2021/10/SDS-samthykkir-sameiningu-vid-Kjol_2-600x662.jpg\" alt=\"\" width=\"126\" height=\"139\" /> Arna Jakobína, formaður Kjalar, og Helga fráfarandi formaður SDS.[/caption]\r\n\r\nKjölur stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu er eitt af stærstu aðildarfélögum BSRB. Félagið er deildaskipt og í kjölfar sameiningarinnar verður stofnuð SDS deild innan Kjalar. Aðrar deildir félagsins eru á Dalvík, Siglufirði, Akureyri, í Skagafirði, Húnavatnssýslum og Borgarfirði. Við sameininguna tekur Helga Hafsteinsdóttir fráfarandi formaður SDS, sæti í stjórn Kjalar en SDS-deild er tryggt sæti á lista til stjórnar Kjalar stéttarfélags samkvæmt lögum félagsins.\r\n\r\nFélagsaldur félagsmanna SDS flyst að fullu til sjóða Kjalar stéttarfélags, orlofssjóðs og starfsmenntasjóðs. Til næstu áramóta verður afgreiðsla styrkja starfsmenntasjóðs og afgreiðsla orlofshúsa SDS með óbreyttu sniði.",
  "innerBlocks": []
}
SDS samþykkir sameiningu við Kjöl - Skessuhorn