Viðurkenningar fyrir falleg hús og umhverfi á Akranesi – myndasyrpa

"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Síðastliðinn fimmtudag voru afhentar umhverfisviðurkenningar Akraneskaupstaðar fyrir árið 2021. Ákveðið var að hafa sama hátt á og í fyrra að fulltrúar úr Skipulags- og umhverfisráði fóru og afhentu viðurkenningar fyrir utan heimili fólks. Ragnar B. Sæmundsson bæjarfulltrúi og formaður nefndarinnar stýrði dagskrá, ásamt Guðríði Sigurjónsdóttur nefndarmanni og Sigurði Páli Harðarsyni sviðsstjóra. Þess ber að geta að Ólafur Adolfsson, sem sæti á í nefndinni, átti ekki heiman gengt þennan dag. Viðurkenningarnar voru vandaður skjöldur og viðurkenningarskjal í ramma. Í aðdraganda þessa vals gafst íbúum kostur á að senda inn tilnefningar sem ráðið fór síðan yfir en kallaði til liðs við sig Helenu Guttormsdóttur lektor við umhverfisskipulagsbraut LbhÍ. Að sögn Ragnars B Sæmundssonar var markmiðið að vekja í víðum skilningi athygli á atriðum sem skipta uppbyggingu og framtíð bæjarins máli og verðlauna það sem vel er gert í umhverfismálum.\r\n\r\nFalleg einbýlishúsalóð\r\n\r\nHjónin Vilborg Helgadóttir og Jón Þór Þorgeirsson fengu viðurkenningu í flokknum falleg einbýlishúsalóð fyrir garðinn við Hólmaflöt 8. Endurgerð lóðar er vel heppnuð, aðkoma er falleg með fjölbreyttum gróðri sem liggur milli gangstéttar og skjólveggs. Mikið úrval reynitegunda setja skemmtilegan svip á lóðina.\r\n\r\nFalleg fjölbýlishúsalóð\r\n\r\nÍbúar við Akralund 2 fengu viðurkenningu fyrir fallega fjölbýlishúsalóð, en lóðin er einstaklega snyrtileg með fallegu samræmi milli aðkomu og efnisvals í skjólveggjum, merkingum, ruslageymslum o.s.fv. Skálína er í steypti gönguleið og tilkomumikið náttúrugrjót setur fallegan svip á aðkomu.\r\n\r\nHvatningarverðlaun\r\n\r\nHvatningaverðlaunin fengu eigendur að Deildartúni 4. Viðar Sigurðsson tók við þeim fyrir sína hönd og annarra eigenda hússins. Verðlaunin eru fyrir miklar endurbætur utan húss. Í ljós kemur glæsileg tignarleg bygging með fallegum yfirbyggðum svölum og skrautsteypu sem einkennir mörg steypt hús á Akranesi frá upphafi síðustu aldar. Hús með mikið varðveislugildi.\r\n\r\nVel heppnaðar endurbætur\r\n\r\nHjónin Sigurður Már Jónsson og Sigríður Hallgrímsdóttir fengu viðurkenningu fyrir vel heppnaðar endurbætur á húsi og lóð við Krókatún 8, en húsið er í daglegu tali kallað Sandar. Niðurstaðan er vel uppgert steinhús sem stendur við sjávarlóð, í einum elsta hluta bæjarins. Lóðin situr djúpt og er einstaklega opin og falleg sjávarmegin frá strandstígnum, þar sem einfalt lágvaxið gróðurval vinnur með náttúrunni og ströndinni. Endurgerð húss, pallur baka til og gróður skapa sterka upplifun af staðaranda svæðisins.\r\n\r\nTré ársins\r\n\r\nTré ársins er fallegur ilmreynir sem stendur við aðkomu að raðhúsi þeirra Vigdísar Elfu Jónsdóttur og Hjálms Dórs Hjálmssonar að Jörundarholti 133. En gaman er að segja frá því að þau Jón Þór og Vilborg, sem áttu fallegustu einbýlishúsalóðina, gróðursettu reynitréð á sínum tíma.\r\n\r\nSamfélagsverðlaun\r\n\r\nLoks voru samfélagsverðlaun afhent. Þau hlaut Helga Ólöf Oliversdóttir. Helga hefur sýnt ótrúlega samfélagslega virkni með daglegum göngum og kaffibollaverkefni sínu á Covidtímum þar sem hún fór með kaffi og bolla og drakk utan dyra ýmist ein eða með öðrum og sendi kveðju til vina og ættmenna á samfélagsmiðlum. Á sama tíma hefur hún gengið í gegnum erfið veikindi, búin að vera mikið ein en sýnt fordæmi sem hvatt hefur marga til dáða.\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"large\" ids=\"48242,48243,48244,48245,48246,48247,48248,48249,48251,48250\"]",
"innerBlocks": []

Viðurkenningar fyrir falleg hús og umhverfi á Akranesi - myndasyrpa - Skessuhorn