
Grundfirsku stelpurnar voru spenntar fyrir leik. Ljósm. tfk.
Stelpurnar í stelpuboltanum lögðu land undir fót
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í Grundarfirði hefur verið boðið uppá stelpuæfingar undanfarið sem hefur leitt af sér mikla aukningu í mætingu hjá stelpunum. Stelpurnar hafa verið duglegar að mæta og láta ljós sitt skína undir öruggri leiðsögn Halldóru Daggar Hjörleifsdóttur þjálfara. Margar þessara stelpna hafa ekki haft áhuga að mæta á blandaðar æfingar og finnst mun skemmtilegra að mæta þar sem eingöngu stelpur eru iðkendur. Síðasta föstudag var svo hópferð á landsleik Íslands og Tékklands á Laugardalsvelli en leiknum lyktaði með 4-0 sigri íslensku stelpnanna við mikinn fögnuð áhorfenda. Stelpurnar frá Grundarfirði skemmtu sér konunglega og létu blautt og kalt veðrið ekki spilla gleðinni. Að leik loknum var svo farið niður að rekkverki og heilsað uppá íslensku landsliðskonurnar sem gáfu sér góðan tíma að heilsa upp á þessa ungu áhorfendur sem margar voru að fara á sinn fyrsta landsleik.",
"innerBlocks": []
}