Söguskilti verður afhjúpað í Saurbæ

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands mun næstkomandi miðvikudag klukkan 16:30 afhjúpa nýtt söguskilti við Hallgrímskirkju í Saurbæ, á Hallgrímsmessu. Að afhjúpun lokinni verður athöfn í kirkjunni. Á skiltinu er farið yfir sögu Hallgrímskirkju, Hallgríms Péturssonar og Guðríðar Símonardóttur. Þetta er fyrsti liður í verkefninu „Merking sögu og merkisstaða í Hvalfjarðarsveit“ en það er unnið í samstarfi við Markaðsstofu Vesturlands og byggir á samstarfi þriggja sveitarfélaga við Hvalfjörð sem eru Kjósarhreppur, Hvalfjarðarsveit og Akranes og gengur út á þróun ferðaleiða um Hvalfjörð.",
  "innerBlocks": []
}
Söguskilti verður afhjúpað í Saurbæ - Skessuhorn