{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á föstudagskvöldið fékk félagsþjónusta Borgarbyggðar staðfestingu á Covid-19 smitum í búsetuþjónustu og í hæfingarstaðnum Öldunni. „Vegna þessara smita fara flestir starfsmenn, leiðbeinendur og skjólstæðingar ýmist í sóttkví eða smitgát. Við erum búin að tryggja mönnun í dag og flestir sem eru í smitgát eða sóttkví munu komast í Covid-19 próf í dag,“ skrifaði Þórdís Sif Sigurðardóttir sveitarstjóri Borgarbyggðar á Facebook í gær, laugardag. „Við stöndum núna frammi fyrir því að það gæti reynst erfitt að veita fólkinu okkar í búsetunni þá þjónustu sem það þarf og er lögbundin. Við leitum til fólks sem þegar hefur skráð sig í bakvarðasveit Borgarbyggðar en þurfum hugsanlega meiri mannskap. Við leitum því til ykkar, ef þið getið með einhverjum hætti létt undir með því starfsfólki sem eftir stendur til að þjónusta fatlað fólk, þá þiggjum við þinn liðsstyrk. Við leitum að þér í bakvarðarsveit okkar, við gætum jafnvel þurft fólk strax um helgina. Þeir sem við leitum síðan til með aðstoð munum við gera tímabundinn ráðningarsamning við og ráða í tímavinnu.“ Þá segir Þórdís að Aldan verði lokuð a.m.k. út þessa viku.\r\n\r\nÞeir sem geta létt undir með búsetuþjónustunni eru beðnir að senda tölvupóst á vildis@borgarbyggd.is eða hringja í Ingu Vildísi í síma í 862-0814 ef viðkomandi hafa hug á að leggja verkefninu lið.",
"innerBlocks": []
}
Óska eftir bakvörðum vegna smita í búsetuþjónustu - Skessuhorn