Fréttir

true

Minnast Hallbjargar með tónleikum á Vökudögum

Rótarýklúbbur Akraness og Tónlistarskóli Akraness minnast Hallbjargar Bjarnadóttur með tónleikum sem fara fram á Vökudögum á Akranesi fimmtudaginn 4. nóvember næstkomandi. Í byrjun þessa árs fékk Rótarýklúbbur Akraness styrk úr verkefnasjóði Rótarý á Íslandi. Styrkurinn er til að kosta tónleika til minningar um Hallbjörgu Bjarnadóttur söngkonu. „Hallbjörg var frumkvöðull í djasstónlist á Íslandi. Rödd hennar…Lesa meira

true

Covid smit í leikmannahópi Skallagríms

Leik Hattar frá Egilsstöðum og Skallagríms sem átti að fara fram í kvöld hefur verið frestað vegna smits í herbúðum Skallagríms. Um eru að ræða 3-4 leikmenn sem eru orðnir veikir að sögn KKÍ og því var ákveðið í kjölfarið að fresta leiknum. Nýr leiktími verður ákveðinn eins fljótt og hægt verður að spila en…Lesa meira

true

Verðlaun veitt fyrir fallegt umhverfi og snyrtimennsku

Í gær veitti Borgarbyggð árlegar viðurkenningar í umhverfismálum. Það er umhverfis- og landbúnaðarnefnd sveitarfélagsins sem hefur umsjón með verkefninu; kallar eftir tilnefningum, fer yfir þær og metur áður en verðlaunahafar eru boðaðir til fundar. Sem fyrr voru veitt verðlaun fyrir lóð við íbúðarhús, lóð við atvinnuhúsnæði, snyrtilegt bændabýli auk sérstakrar samfélagsviðurkenningar til einstaklings, hóps eða…Lesa meira

true

Óvarlega var staðið að sprengingum í Fossabrekku

Nú er unnið við efnistöku fyrir væntanlega vegagerð innarlega í Skorradal í Borgarfirði. Verktaki er Þróttur en undirverktaki við efnisvinnsluna er Borgarvirki. Efnið er m.a. sótt í klappir í Fossabrekku, sem er milli bæjanna Syðstu-Fossa í Andakíl og Hálsa í Skorradal. Eftir að myrkur skall á í gærkvöldi var unnið við sprengingar við veginn og…Lesa meira

true

Margir nemendur af Vesturlandi sendir heim úr Ungmennabúðum

Smit kom upp í hópi nemenda sem voru í Ungmennabúðum UMFÍ á Laugarvatni í vikunni. Þar komu saman á mánudaginn margir nemendur í níunda bekk úr grunnskólum af Vesturlandi en í gærkvöldi fékkst staðfest Covid-19 smit í hópnum. Voru foreldrar og skólastjórnendur strax upplýstir um málið. Í kjölfarið var ákveðið, í samráði við Almannavarnir og…Lesa meira

true

Mikil aukning í löndunum í Grundarfirði

Töluverð aukning er milli ára á komum fiskiskipa til Grundarfjarðar en fjöldi landana árið 2020 var rétt rúmlega 260 en í október 2021 var fjöldi landana kominn í rúmlega 280. Stefnir sú tala vel yfir þrjú hundruð áður en árið er úti. Nú á síðustu vikum hafa m.a. Akurey AK-10, Helga María RE-1, Jón á…Lesa meira

true

Ask arkitektar sjá um hönnun á íþróttahúsi í Hvalfjarðarsveit

Búið er að semja við Ask arkitekta um hönnun á nýju íþróttahúsi í Hvalfjarðarsveit. Málið er enn á frumstigi og að sögn Lindu Bjarkar Pálsdóttur, sveitarstjóra í Hvalfjarðarsveit, á enn eftir að taka margar ákvarðanir áður en formlegar framkvæmdir geta hafist. „Þetta er enn á frumstigi og við eigum til dæmis eftir að taka ákvörðun…Lesa meira

true

Skallagrímskonur töpuðu gegn Breiðabliki

Skallagrímur tók á móti Breiðablik í Subway deild kvenna í körfuknattleik í Fjósinu í Borgarnesi í gærkvöldi. Fyrir leikinn voru þessi lið án stiga í deildinni og ljóst að hart yrði barist til að komast á blað. Sú varð raunin í fyrsta leikhluta en jafnt var á flestum tölum og gestirnir með tveggja stiga forskot…Lesa meira

true

Þjónustustöð og bifreiðaþjónusta N1 verður reist við Hausthúsatorg

Í síðustu viku var haldinn kynningarfundur á vegum Akraneskaupstaðar vegna breytinga á aðalskipulagi Akraness 2005-2017 og nýju deiliskipulagi Hausthúsatorgs. Bæjarstjórn Akraness áformar breytingu á aðalskipulagi þannig að gert verði ráð fyrir svæði fyrir verslun og þjónustu norðan Akranesvegar, við núverandi innkeyrslu í bæinn. Í fyrirhugaðri breytingu felst að skilgreindur er nýr 1,6 hektara landnotkunarreitur fyrir…Lesa meira

true

Verðbreytingar hjá Íslandspósti á pökkum innanlands og fjölpósti

Gjaldskrá Íslandspósts mun um næstu mánaðamót taka breytingum. Þær eru gerðar til að að uppfylla lög sem Alþingi samþykkti í sumar sem kveða á um að gjald endurspegli raunkostnað. Gjaldskrá mun því hækka á einhverjum stöðum, einkum í þéttbýli, en lækka á öðrum. Hækkanirnar lenda fyrst og fremst á íbúum og fyrirtækjum á landsbyggðinni. Í…Lesa meira