Fréttir

true

Lagt til að prestum fækki um einn á Snæfellsnesi

Fyrir kirkjuþingi, sem hefst á laugardaginn og lýkur um miðja næstu viku, liggja tillögur um að fækka prestum á landsbyggðinni um tíu og hálft stöðugildi. Á sama tíma er lagt til að stöðugildum verði fjölgað í eystra Reykjavíkurprófastsdæmi og Kjalarnesprófastsdæmi og dregið nokkuð úr sérþjónustu presta. Lagt er til að fækkað verði um eitt stöðugildi…Lesa meira

true

Sex ný fyrirtæki á Vesturlandi á úrvalslista Creditinfo

Rétt rúm fimm prósent fyrirtækja á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki ársins eru á Vesturlandi, eða 43 af 853. Útgerðar- og fiskvinnslufyrirtæki eru áberandi á listanum, en annars er um að ræða fjölbreytt fyrirtæki af margvíslegum toga; stór, meðalstór og lítil. Fimm efstu sæti listans á Vesturlandi eru öll í flokki stórra fyrirtækja, en þau…Lesa meira

true

Krufning í FSN

Nemendur í Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði voru önnum kafnir í einni skólastofunni í síðustu viku er fréttaritara Skessuhorns bar að garði. Þar voru saman komnir nemendur úr dýra, líffæra- og lífeðlisfræði, upplýsingatækni og af starfsbraut skólans. Nemendur fengu það verkefni að skoða hjarta, lungu, lifur og nýru úr lömbum en tilgangur verkefnisins var að skoða…Lesa meira

true

Heiðdís Lind ráðin skólastjóri Leikskólans Sólvalla

Gengið hefur verið frá ráðningu nýs leikskólastjóra á Sólvelli í Grundarfirði. Við starfinu tekur Heiðdís Lind Kristinsdóttir sem er fædd og uppalin í Grundarfirði. Starfaði hún við Bíldudalsskóla um fimm ára skeið en hóf störf í Leikskólanum Sólvöllum í júní síðastliðnum, sem deildarstjóri. Heiðdís lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga 2014, B.Ed. gráðu í grunnskólakennslu yngri…Lesa meira

true

Gengið var til kosninga í Grundaskóla

Á miðvikudaginn í liðinni viku gengu kennarar og foreldrar barna í 10. bekk í Grundaskóla á Akranesi til kosninga eftir harða kosningabaráttu. Kosningarnar voru hluti af verkefni 10. bekkjar þar sem nemendur skiptu sér í hópa og stofnuðu stjórnmálaflokka. Krakkarnir settu upp veglegar stefnuskrár með þeim málum sem þeir vildu setja á oddinn. Þau vildu…Lesa meira

true

Mikil matarveisla framundan á Vesturlandi

Veisluhöld og matarhátíð Vesturlands er handan við hornið, en um er að ræða þrískipta viðburðadagskrá sem er hluti af áhersluverkefni Sóknaráætlunar og Áfangastaðaáætlunar „Matarauður Vesturlands“. Allan nóvembermánuð verður haldið úti viðburðadagatali; „Veisla á Vesturlandi“ þar sem matvælaframleiðendur eða veitingaaðilar í landshlutanum eru hvattir til að skrá sig og taka þátt. Til dæmis með því að…Lesa meira

true

Jól í skókassa til barna í Úkraínu

Verkefnið Jól í skókassa á vegum KFUM og KFUK á Íslandi felst í því að gleðja börn í Úkraínu sem búa við bágar aðstæður og gefa þeim jólagjafir. Gjafirnar eru settar í skókassa og til að öll börnin fái svipaðar jólagjafir eru ákveðnir hlutir sem mælt er með að fari í hvern kassa. Gjafirnar eru…Lesa meira

true

„Metnaður og vilji að vera með góðan skóla“

Hilmar Már Arason tók við sem skólastjóri Grunnskóla Snæfellsbæjar af Magnúsi Þór Jónssyni haustið 2015 og hefur því gegnt starfinu í sex ár. Blaðamaður Skessuhorns var á ferðinni í Ólafsvík á dögunum og ákvað að heilsa upp á skólastjórann sem tók vel á móti honum. Í Grunnskóla Snæfellsbæjar eru nemendur 218 talsins á þremur starfsstöðvum…Lesa meira

true

Kraftmiklar kvenfélagskonur sóttu landsþing í Borgarnesi um helgina

Um 200 kvenfélagskonur komu saman í Borgarnesi þegar 39. landsþing Kvenfélagasambands Íslands var haldið á Hótel Borgarnesi um liðna helgi. Kvenfélagasamband Íslands (KÍ) var stofnað 1930 sem samstarfsvettvangur og málsvari kvenfélaganna í landinu. KÍ er fjölmennasta kvennahreyfingin á Íslandi sem starfar á landsvísu, með 17 héraðssambönd og 142 kvenfélög sem telja um 4.500 félaga. Það…Lesa meira

true

Lítið gerst varðandi bætur vegna sementsfoks

Þeir íbúar á Akranesi sem urðu fyrir tjóni þegar mikið magn sements slapp út í loftið og lagðist yfir nærliggjandi götur, hús og bíla, í byrjun árs eru margir orðnir langþreyttir á biðinni eftir upplýsingum um raunverulegt tjón af völdum sementsins og sanngjörnum bótum. Í byrjun þessa árs lýsti Sementsverksmiðjan yfir ábyrgð á því óhappi…Lesa meira