Fréttir

Heiðdís Lind ráðin skólastjóri Leikskólans Sólvalla

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Gengið hefur verið frá ráðningu nýs leikskólastjóra á Sólvelli í Grundarfirði. Við starfinu tekur Heiðdís Lind Kristinsdóttir sem er fædd og uppalin í Grundarfirði. Starfaði hún við Bíldudalsskóla um fimm ára skeið en hóf störf í Leikskólanum Sólvöllum í júní síðastliðnum, sem deildarstjóri. Heiðdís lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga 2014, B.Ed. gráðu í grunnskólakennslu yngri barna frá Háskóla Íslands 2018 og MT-gráðu frá Háskólanum á Akureyri með áherslu á mál og læsi.\r\n\r\nLeikskólinn Sólvellir er þriggja deilda leikskóli og eru nemendur nú um 40 talsins. Skólinn tekur við börnum frá tólf mánaða aldri og upp í fimm ára, en þá tekur við leikskóladeildin Eldhamrar, sem rekin er undir stjórn grunnskólans. „Heiðdís tekur við starfi leikskólastjóra á næstu dögum og býður Grundarfjarðarbær hana velkomna til starfa. Jafnframt er fráfarandi leikskólastjóra, Önnu Rafnsdóttur, þakkað fyrir vel unnin störf síðustu ár,“ segir í tilkynningu frá Grundarfjarðarbæ.",
  "innerBlocks": []
}
Heiðdís Lind ráðin skólastjóri Leikskólans Sólvalla - Skessuhorn