Fréttir

true

Bygging íþróttamannvirkja í Búðardal

Sveitarstjórn Dalabyggðar auglýsir nú eftir þátttakendum í forvali fyrir þátttöku í alútboði vegna fyrirhugaðrar byggingar á íþróttamiðstöð í Búðardal. Á íþróttamiðstöðin að hafa íþróttasal, þjónustukjarna með búningsklefum, lyftingarsal og útisundlaug. Í auglýsingu á síðu Dalabyggðar segir að íþróttamiðstöðin eigi að vera um 1300 fm að stærð og er þá útisvæði með sundlaugarkeri, vaðlaug og heitum…Lesa meira

true

Gengur illa að manna stjórn

Körfuknattleiksdeild Snæfells sendi út neyðarkall á Facebook síðu deildarinnar síðastliðið mánudagskvöld þar sem kallað var eftir fólki í stjórn. Áður hafði verið leitað eftir fólki í stjórn deildarinnar þar sem núverandi stjórn ætlar ekki að gefa kost á sér áfram. En lítið var um framboð og því gæti farið svo að ekki náist í nýja…Lesa meira

true

Íþróttavika í Grundarfirði hófst í gær

Grundfirðingar eru samstíga með nágrönnum sínum í Snæfellsnesbæ og Stykkishólmsbæ því í gær hófst Íþróttavika Grundarfjarðarbæjar og stendur til 30. september. Í samstarfi við nokkra aðila í bænum hefur verið sett saman vegleg dagskrá og eru íbúar hvattir til að taka þátt. Íþróttavika Evrópa er haldin ár hvert í yfir 30 Evrópulöndum og sameinast Evrópubúar…Lesa meira

true

Heilsudagar í Stykkishólmi hófust í gær

Heilsuefling er áberandi í Stykkishólmi þessa dagana því í gær hófust Heilsudagar í Hólminum sem hluti af ÍSÍ íþróttaviku Evrópu og lýkur sunnudaginn 3. október. Dagskráin er hlaðin skemmtilegum heilsutengdum viðburðum og kynningum á íþróttastarfi í bænum sem hentar fólki á öllum aldri. Fjölmargir viðburðir eru á dagskrá og ættu því allir að geta fundið…Lesa meira

true

Níu komnir í einangrun á Vesturlandi

36 greindust með kórónuveirusmit innanlands í gær skv. uppfærðum tölum á Covid.is. Eru það jafn margir og greindust daginn áður. 1.164 eru í sóttkví á landinu og átta á sjúkrahúsi, þar af eru fjórir á gjörgæslu. Fjölgað hefur um tvo í einangrun á Vesturlandi á milli daga og eru nú níu í einangrun í landshlutanum…Lesa meira

true

Skoða fjarvarmaveitu fyrir Grundarfjarðarbæ

Bæjarstjórn Grundarfjarðar skoðar nú í samstarfi við Veitur ohf. hvort hægt sé að hitaveituvæða Grundarfjarðarbæ með svokallaðri fjarvarmaveitu. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Grundarfjarðarbæ og Veitum. Samstarfið hófst í ársbyrjun og felst í forhönnun og fýsileikakönnun á hitaveituvæðingu Grundarfjarðarbæjar með varmadælum. Varminn yrði þá sóttur úr bæði umhverfinu og glatvarma frá fyrirtækjum í…Lesa meira

true

Lokanir á Jaðarsbökkum vegna kosninga

Vegna komandi kosninga verður skerðing á opnun/þjónustu í Íþróttamiðstöðinni á Jaðarsbökkum á Akranesi næstu daga. Íþróttasalurinn verður lokaður fram á sunnudag. Salur 3 (græni) og Salur 5 (parket) verða einnig lokaðir fram á sunnudag. Þreksalur og salur 2 (gervigras) verða lokaðir á morgun laugardaginn 25. september. Sundlaugargestir þurfa ekki að hafa áhyggjur því sundlaugin verður…Lesa meira

true

Nytjamarkaðurinn í Grímshús

Nytjamarkaður Körfuknattleiksdeildar Skallagríms hefur fengið nýtt húsnæði. Markaðurinn mun flytja í Grímshús í Brákarey en frá því er greint á Facebook síðu Nytjamarkaðarins. Jafnframt er tekið fram að opið verður frá kl. 16:00 í dag fyrir móttöku stærri hluta í Grímshúsi ef fólk vill gefa.Lesa meira

true

Heilsudagar í Snæfellsbæ hefjast í næstu viku

Snæfellsbær gerir allt sem við kemur heilsu góð skil dagana 29. september til 3. október næstkomandi og heldur heilsudaga Snæfellsbæjar í fimmta skipti. Dagskráin er afar vegleg og er skipulögð með hreyfiviku Evrópu í huga en það er verkefni á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem hefur það markmið að sporna við auknu hreyfingarleysi meðal…Lesa meira

true

Söfnun fyrir Innra-Hólmskirkju

Eins og áður hefur verið greint frá í Skessuhorni hafa frá því í vor verið miklar framkvæmdir við Innra-Hólmskirkju þar sem gert hefur verið við steypuskemmdir og kirkjan máluð að utan. Viðgerð á þaki hófst um mánaðamótin júní/júlí, talsverðar fúaskemmdir komu þar í ljós en burðarvirki var í lagi. Þessari viðgerð ásamt viðgerð á turni…Lesa meira