
Stuðningsmenn Snæfells á pöllunum í íþróttahúsinu í Stykkishólmi. Ljósm. úr safni/ sá.
Gengur illa að manna stjórn
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Körfuknattleiksdeild Snæfells sendi út neyðarkall á Facebook síðu deildarinnar síðastliðið mánudagskvöld þar sem kallað var eftir fólki í stjórn. Áður hafði verið leitað eftir fólki í stjórn deildarinnar þar sem núverandi stjórn ætlar ekki að gefa kost á sér áfram. En lítið var um framboð og því gæti farið svo að ekki náist í nýja stjórn. Ef ekki næst að manna stjórn þarf að leggja niður deildirnar og draga bæði lið úr keppni. En Snæfell er með lið í 1. deild kvenna og í 2. deild karla. Að sögn Hjörleifs Kristins Hjörleifssonar, formanns Umf. Snæfells stendur til að boða til neyðarfundar og reyna að finna lausn á málinu. Hann segir koma til greina að setja einnig saman nokkra minni hópa til að sjá um ákveðin verkefni til að létta álagið á stjórninni. „Þetta er krísa sem er að ganga yfir hjá okkur og víðar. Það virðist oft ganga illa að manna svona stjórnir. Við reynum að bjarga þessu og ég er bjartsýnn að við náum því,“ segir hann.",
"innerBlocks": []
}