Ljósm. af vef Grundarfjarðarbæjar

Íþróttavika í Grundarfirði hófst í gær

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Grundfirðingar eru samstíga með nágrönnum sínum í Snæfellsnesbæ og Stykkishólmsbæ því í gær hófst Íþróttavika Grundarfjarðarbæjar og stendur til 30. september. Í samstarfi við nokkra aðila í bænum hefur verið sett saman vegleg dagskrá og eru íbúar hvattir til að taka þátt. Íþróttavika Evrópa er haldin ár hvert í yfir 30 Evrópulöndum og sameinast Evrópubúar í vikunni undir slagorðinu #Be Active. Markmið Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna þannig við auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Íþróttavikan er ætluð öllum óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Áhersla er lögð á að höfða til grasrótarinnar og hvetja almenning til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi.\r\n\r\nDagskrá Íþróttavikunnar er fjölbreytt og má þar nefna spinning af ýmsu tagi, krossfit, kennslu í badminton, heilsueflingu fyrir 60 ára og eldri, blak og fleira. Alla dagana í líkamsræktinni er hægt að fara í fitumælingu, í frían prufutíma í spinning og/eða líkamsræktina. Í BOX7 er frítt í krossfit og í morgunhreysti og frítt grunnnámskeið í krossfit hefst þriðjudaginn 28. september. Þá eru hugmyndir að hreyfingu eins og klifri í Klifurfelli, gönguleiðum í nágrenninu, skoðun listaverka í bænum, að skreppa í sund og í golf en frítt verður í golf alla vikuna. Nánari upplýsingar má finna á grundarfjordur.is",
  "innerBlocks": []
}
Íþróttavika í Grundarfirði hófst í gær - Skessuhorn