Innra-Hólmskirkja í Hvalfjarðarsveit. Ljósm. vaks

Söfnun fyrir Innra-Hólmskirkju

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Eins og áður hefur verið greint frá í Skessuhorni hafa frá því í vor verið miklar framkvæmdir við Innra-Hólmskirkju þar sem gert hefur verið við steypuskemmdir og kirkjan máluð að utan. Viðgerð á þaki hófst um mánaðamótin júní/júlí, talsverðar fúaskemmdir komu þar í ljós en burðarvirki var í lagi. Þessari viðgerð ásamt viðgerð á turni er nú lokið og húsið tekið stakkaskiptum. Stefnt er að því að skipta um glugga og útihurð ásamt tilheyrandi umbúnaði en að auki þarf að koma ýmsu í viðunandi horf sem látið hefur á sjá og er afleiðing viðhaldsleysis. Þá er einnig stefnt að því að endurbæta hitakerfi kirkjunnar, þ.e. að fjarlæga orkufreka rafhitun og setja upp varmadælubúnað.\r\n\r\nSöfnuður kirkjunnar hefur staðið fyrir ýmiskonar fjáröflun fyrir framkvæmdunum og hefur náð að safna nægu fjármagni til að hefja framkvæmdir og komast vel á veg með þær. Sömuleiðis hafa gjafir frá velunnurum kirkjunnar komið að góðum nótum. Enn vantar þó nokkuð fjármagn til að ljúka framkvæmdum. Til að það takist leitast söfnuður kirkjunnar nú til almennings um að styrkja verkefnið með því að leggja inn á eftirfarandi reikning: 0326-22-1873 Kt. 660169-5129. Vonir standa til að það náist að ljúka viðgerðum á næsta ári á 130 ára afmæli kirkjunnar.",
  "innerBlocks": []
}
Söfnun fyrir Innra-Hólmskirkju - Skessuhorn