Heilsudagar í Snæfellsbæ hefjast í næstu viku

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Snæfellsbær gerir allt sem við kemur heilsu góð skil dagana 29. september til 3. október næstkomandi og heldur heilsudaga Snæfellsbæjar í fimmta skipti. Dagskráin er afar vegleg og er skipulögð með hreyfiviku Evrópu í huga en það er verkefni á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem hefur það markmið að sporna við auknu hreyfingarleysi meðal almennings og hvetja til íþróttaiðkunar. Á heilsudögum er lögð áhersla á að bjóða íbúum upp á heilsutengda viðburði og kynningar sem henta öllum aldri. Fjölmargir viðburðir eru á dagskrá og ættu flestir að geta fundið eitthvað sem vekur áhuga. Heilsudagarnir, sem voru síðast haldnir í mars 2019, hafa ætíð vakið mikla lukku meðal bæjarbúa og athygli langt út fyrir bæjarmörkin. Höfðu heilsudagarnir fest sig í sessi sem einn af hápunktum ársins hjá mörgum íbúum áður en þeir féllu niður í fyrra vegna samkomutakmarkana.\r\n\r\nÁ vef Snæfellsbæjar segir að það hafi aldrei verið mikilvægara að huga að líkamlegri og andlegri heilsu nú þegar undanfarnir mánuðir hafi einkennst af fáum mannamótum og félagslegri einangrun. Því eru íbúar hvattir til að mæta á viðburði, skella sér í laugina, stunda útivist og aðra hreyfingu.\r\n\r\nDagskráin hefst á miðvikudeginum með leikfimi fyrir 50 ára og eldri í íþróttahúsinu, á fimmtudeginum er meðal annars opinn íþróttatími fyrir fatlaða, vatnsleikfimi fyrir eldri borgara og fyrirlestur systranna Margrétar Láru og Elísu Viðarsdætra um andlega heilsu og næringu. Skokkað með Kristfríði er fyrst á dagskrá á föstudeginum og endar á kynningu á amerískum fótbolta á Ólafsvíkurvelli. Siggi Scheving startar laugardeginum með spinning í íþróttahúsinu, síðan er fjölskylduhjólaferð með Fríðu og Jóhönnu og kynning á starfi UMF Víkings/Reynis þar sem þjálfarar kynna íþróttagreinar fyrir foreldrum og iðkendum. Sunnudagurinn byrjar í hafjóga og síðan með krílastund í heitri sundlaug, íþróttaskóli fyrir leikskólabörnin verður í íþróttahúsinu og lokaviðburður heilsudaganna þetta árið er námskeið í frisbígolfi á nýja vellinum í Snæfellsbæ.\r\n\r\nFrítt verður í Sólarsport alla dagana, opnar æfingar hjá UMF Víkingi/Reyni og fjölmörg heilsutengd tilboð hjá fyrirtækjum í bænum. Dagskrá yfir alla viðburði heilsudagana má finna á snb.is",
  "innerBlocks": []
}
Heilsudagar í Snæfellsbæ hefjast í næstu viku - Skessuhorn