Fréttir

true

Þau verða þingmenn Norðvesturkjördæmis

Talningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi lauk á áttunda tímanum í morgun. Engin breyting varð frá fyrri tölum í nótt um hverjir yrðu kjördæmakjörnir þingmenn. Jöfnunarþingsætið var hins vegar á fleygiferð allt þar til búið var að telja síðasta atkvæðið á landinu. Það kom í hlut Guðmundar Gunnarssonar í Viðreisn. Óhætt er að segja að Framsóknarflokkur og…Lesa meira

true

Óbreytt staða kjördæmakjörinna samkvæmt nýjum tölum

Nú hafa verið talin 12.423 atkvæði í Norðvesturkjördæmi. Miðað við síðustu tölur breytist staðan ekki hvað varðar kjördæmakjörna þingmenn. Framsóknarflokkur fær 3, Sjálfstæðisflokkur tvo, Flokkur fólksins einn  og Vinstri hreyfingin grænt framboð einn. Jöfnunarþingsætið er eins og er Miðflokksins, en það breytist ört eftir því sem nýjar tölur koma úr öðrum kjördæmum. Atkvæði hafa fallið…Lesa meira

true

Nýjar tölur úr Norðvesturkjördæmi

Nú hafa verið talin 7.803 atkvæði í Norðvesturkjördæmi. Talsverð breyting er frá fyrstu tölum sem birtar voru laust eftir kl. 22. Framsóknarflokkur bætir við sig 3. manni frá fyrstu tölum. Jöfnunarþingsæti fær Samfylkingin nú, en það breytist hratt eftir því sem nýjar tölur koma úr öðrum kjördæmum. Atkvæði hafa fallið þannig: B Listi – 1987…Lesa meira

true

Fyrstu tölur komu úr Borgarnesi

Ingi Tryggvason formaður yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi kom sterkur inn þegar hann kynnti fyrstu tölur úr kosningunum. Kjörstöðum var lokað klukkan 22. Í Borgarnesi eru talin atkvæði í kjördæminu. Nú, þegar búið er að telja 5932 atkvæði, hafa þau fallið þannig: B Listi – 1355 atkvæði (2 kjördæmakjörnir) C Listi – 387 atkvæði (1 jöfnunarþingsæti) D…Lesa meira

true

Skagamenn björguðu sér frá falli á ævintýralegan hátt

Ótrúlegar sjö mínútur breyttu martröð yfir í dísætan draum Það er lýðnum ljóst. Skagamenn verða á meðal þeirra bestu á næsta ári í Pepsi Max deildinni eftir ótrúlegan sigur á Keflvíkingum á HS Orkuvellinum syðra í dag. Frábær endir á erfiðu tímabili Skagamanna því nánast enginn nema kannski þjálfari og leikmenn ÍA höfðu trú á…Lesa meira

true

Samið um að Rafn Valur taki að sér sölu Norðurár

Í gær undirrituðu Guðrún Sigurjónsdóttir fyrir hönd Veiðifélags Norðurár og Rafn Valur Alfreðsson f.h. FHD ehf samning um sölu og umsjón Norðurár til næstu fimm ára. Eins og kunnugt er hættir Einar Sigfússon nú sölu veiðileyfa í ána. Samningurinn við Rafn Val var samþykktur samhljóða á félagsfundi í Munaðarnesi í gærkvöldi. „Það var samþykkt á…Lesa meira

true

Upp er runninn kosningadagur

Í dag, laugardaginn 25. september, ganga Íslendingar til alþingiskosninga. Hvetjum við landsmenn eindregið til að skella sér á kjörstað og nýta lögvarinn rétt sinn til að hafa áhrif. Allar upplýsingar um kosningarnar má finna á vefnum kosningar.is. Gleðilegan kosningadag!Lesa meira

true

Niðurstaða dómnefndar í hugmyndasamkeppni um Langasand kynnt

Akraneskaupstaður ákvað árið 2020 að efna til hugmyndasamkeppni um skipulag og hönnun Langasandssvæðisins á Akranesi í samstarfi við FÍLA, Félag íslenskra landslagsarkitekta. Markmiðið með samkeppninni var að fá hugmyndir um framtíðarskipulag svæðisins í heild sem tengir m.a. strandsvæði, skólasvæði, framtíðar uppbyggingarreit og hafnarsvæðið. Svæðið er um 35 hektarar að stærð og er stór hluti þess…Lesa meira

true

Sviptingar í fylgi og ríkisstjórnin heldur velli

RÚV var rétt í þessu að birta niðurstöðu Gallupkönnunar um fylgi flokka fyrir kosningarnar á morgun. Samkvæmt henni mælast stjórnarflokkarnir þrír; Sjálfstæðisflokkur, Framsókn og VG, með samanlagt með 50 prósenta fylgi og fengju 35 menn á þing. Níu flokkar næðu kjöri á þing. Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 23,4 prósent fylgi, Framsóknarflokkurinn mælist með 14,9 prósent fylgi…Lesa meira

true

Þokkalegt kosningaveður – en fremur hvasst

Viðundandi veður verður á morgun, kosningadaginn 25. september þótt búast megi við norðan stinningskalda. Samkvæmt spá Veðurstofunnar verður norðaustan 10-18 m/sek á morgun, hvassast norðvestan til á landinu og við suðausturströndina. Hér á Vesturlandi má búast við strekkingsvindi. Rigning verður með köflum syðra og skúrir eða él norðanlands, en slydda eða rigning á norðaustur- og…Lesa meira