Fréttir

Þau verða þingmenn Norðvesturkjördæmis

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "[caption id=\"attachment_47673\" align=\"alignleft\" width=\"344\"]<img class=\"wp-image-47673\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2021/09/THau-verda-thingmenn-Nordvesturkjordaemis_0B-600x305.jpg\" alt=\"\" width=\"344\" height=\"175\" /> Fylgi flokka í Norðvesturkjördæmi.[/caption]\r\n\r\nTalningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi lauk á áttunda tímanum í morgun. Engin breyting varð frá fyrri tölum í nótt um hverjir yrðu kjördæmakjörnir þingmenn. Jöfnunarþingsætið var hins vegar á fleygiferð allt þar til búið var að telja síðasta atkvæðið á landinu. Það kom í hlut Guðmundar Gunnarssonar í Viðreisn. Óhætt er að segja að Framsóknarflokkur og Flokkur fólksins hafi verið sigurvegarar í kjördæminu, bættu báðir við sig kjördæmakjörnum manni frá síðustu kosningum. Framsóknarflokkur fær þrjá þingmenn kjörna; Stefán Vagn Stefánsson sem verður 1. þingmaður kjördæmisins, Lilju Rannveigu Sigurgeirsdóttur og Höllu Signýju Kristjánsdóttur. Sjálfstæðiflokkur fær tvo menn á þing, líkt og fyrir fjórum árum; þau Þórdísi Kolbrúnu R Gylfadóttur og Harald Benediktsson. Vinstri grænir fá einn þingmann; Bjarna Jónsson. Loks er þingmaður Flokks fólksins Eyjólfur Ármannsson. Samfylking missir þingmann sinn í kjördæminu og Miðflokkurinn báða sína. Fyrir íbúa í NV kjördæmi setjast því á þing fimm karlmenn og þrjár konur. Í fyrsta skipti í sögunni skipa konur hins vegar meirihluta á Alþingi Íslendinga.\r\n\r\nAlls eru 21.548 á kjörskrá í Norðvesturkjördæmi; 11.008 karlar og 10.508 konur. 17.666 greiddu atkvæði sem er 82% kjörsókn. Auðir seðlar og ógildir í kjördæminu voru 394.\r\n\r\n[gallery columns=\"4\" size=\"medium\" ids=\"47661,47662,47663,47664,47665,47666,47667,47668\"]",
  "innerBlocks": []
}
Þau verða þingmenn Norðvesturkjördæmis - Skessuhorn