
Ljósm. Stykkishólmsbær
Heilsudagar í Stykkishólmi hófust í gær
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Heilsuefling er áberandi í Stykkishólmi þessa dagana því í gær hófust Heilsudagar í Hólminum sem hluti af ÍSÍ íþróttaviku Evrópu og lýkur sunnudaginn 3. október. Dagskráin er hlaðin skemmtilegum heilsutengdum viðburðum og kynningum á íþróttastarfi í bænum sem hentar fólki á öllum aldri. Fjölmargir viðburðir eru á dagskrá og ættu því allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Hólmarar og gestir bæjarins eru hvattir til að mæta á viðburði og taka þátt í skemmtilegri dagskrá. Vakin er sérstaklega athygli á því að frítt er í sundlaugina út þennan mánuð.\r\n\r\nDagskráin er mjög fjölbreytt og má þar nefna opnar krossfit æfingar, íþróttaskóla fyrir yngstu börnin, fjölskylduklifur við Klifurvegginn, fyrirlestrar um sjúkraþjálfun og verki, svefn og einnig um bak á Sjúkrahúsinu. Þá verða Margrét Lára og Elísa Viðarsdætur með fyrirlestur í sal bókasafnsins, fjölskyldufrisbí verður á frisbígolfvellinum og dagskrá Heilsudaga þetta árið lýkur með Skógarskokki í Nýræktarskógi sunnudaginn 3. október.\r\n\r\nÁ Heilsudögum verður til að mynda í grunnskólanum danskennsla, fræðsla um hollt mataræði og útikennsla með gönguferðum og útivist. Leikskólinn fer til dæmis í gönguferðir, hreyfileikir verða í sal og úti í garði og þá verður kynning á nýjum tegundum af ávöxtum. Á dvalarheimilinu verður boðið upp á stólaleikfimi og tækjaþjálfun og í Ásbyrgi verður kynning á frisbígolfi.\r\n\r\nÞeir sem vilja kynna sér alla dagskrána er bent á að skoða vefsíðu Stykkishólmsbæjar, stykkisholmur.is.",
"innerBlocks": []
}