Ljósm. sm

Bygging íþróttamannvirkja í Búðardal

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Sveitarstjórn Dalabyggðar auglýsir nú eftir þátttakendum í forvali fyrir þátttöku í alútboði vegna fyrirhugaðrar byggingar á íþróttamiðstöð í Búðardal. Á íþróttamiðstöðin að hafa íþróttasal, þjónustukjarna með búningsklefum, lyftingarsal og útisundlaug. Í auglýsingu á síðu Dalabyggðar segir að íþróttamiðstöðin eigi að vera um 1300 fm að stærð og er þá útisvæði með sundlaugarkeri, vaðlaug og heitum pottum um 200 fm. Áætlað er að starfsemin verði öll á einni hæð. „Þá verður gert ráð fyrir lagnarými sundlaugar í kjallara og tæknirými á 2. hæð húss. Í húsinu verður hægt að iðka ýmsar íþróttir, bæði æfingar og keppni en miðað er við að í því verði mætt kröfum til keppni í körfubolta,“ segir í auglýsingunni.\r\n\r\n„Verkkaupi hefur setti byggingunni og starfsemi hennar sjálfbærnimarkmið sem mikilvægt er að fylgja eftir. Lögð er megináhersla á að verkið verði unnið á sem hagkvæmastan hátt,“ segir í auglýsingu á vef Dalabyggðar. Umsókn skal skila með tölvupósti með öllum umbeðnum gögnum fyrir kl. 16 þriðjudaginn 12. október næstkomandi. En forvalsgögnin verði afhent að ósk umsækjenda í gegnum tölvupóst, <a href=\"mailto:kristjan@dalir.is\">kristjan@dalir.is</a>. <a href=\"https://dalir.is/frettir/ithrottamannvirki-i-budardal-auglysing-a-forvali/\">Nánari upplýsingar er að finna á vef Dalabyggðar.</a>",
  "innerBlocks": []
}