{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Bæjarstjórn Grundarfjarðar skoðar nú í samstarfi við Veitur ohf. hvort hægt sé að hitaveituvæða Grundarfjarðarbæ með svokallaðri fjarvarmaveitu. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Grundarfjarðarbæ og Veitum. Samstarfið hófst í ársbyrjun og felst í forhönnun og fýsileikakönnun á hitaveituvæðingu Grundarfjarðarbæjar með varmadælum. Varminn yrði þá sóttur úr bæði umhverfinu og glatvarma frá fyrirtækjum í bænum. Þessi aðferð er þekkt í hringrásarhagkerfum erlendis en er nýjung hér á landi.\r\n\r\n„Grundarfjörður er staðsettur á skilgreindu köldu svæði, þ.e. þar sem íbúar og atvinnulíf hafa ekki aðgang að jarðhita og kynda því hús sín með raforku og olíu. Slík rafhitun á íbúðarhúsnæði er að hluta niðurgreidd af ríkinu þar sem hún er mun dýrari en húshitun með jarðhita. Ríkið styrkir einnig fjárfestingar við hitaveituvæðingu á köldum svæðum með eingreiðslu sem að jafnaði miðast við 12 ára áætlaðar niðurgreiðslur á rafmagni eða olíu til húshitunar á veitusvæðinu. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur hins vegar staðfest að fjarvarmaveita fyrir Grundarfjörð uppfylli skilyrði laga um styrk sem miðast við áætlaðar 16 ára niðurgreiðslur. Ákvörðunin styður vel við framgang þessa verkefnis og undirstrikar mikilvægi þess sem lið í að skapa öflugt hringrásarhagkerfi á Íslandi. Áformin eru í samræmi við áherslur orkustefnu um fullnýtingu orkuauðlinda, orkuöryggi, orkuskipti og þjóðhagslega hagkvæmni hitaveituvæðingar á köldum svæðum,“ segir í tilkynningu frá Grundarfjarðarbæ og Veitum.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_47618\" align=\"alignleft\" width=\"195\"]<img class=\"wp-image-47618\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2021/09/Skoda-fjarvarmaveitu-fyrir-Grundarfjardarbae-600x400.jpg\" alt=\"\" width=\"195\" height=\"130\" /> Frá fundi í júní þar sem Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri Grundarfjarðarbæjar og Gestur Pétursson, framkvæmdastjóri Veitna, kynntu málið fyrir Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Ljósm. Grundarfjarðarbær[/caption]\r\n\r\nFýsileikakönnunin felst í því að áætla stofnkostnað hitaveitunnar, rekstrarkostnað og að kortleggja hugsanlegar varmauppsprettur í Grundarfirði og nágrenni. „Tölvuvædd varma-og straumfræðilíkön hafa verið smíðuð með aðstoð norskra sérfræðinga. Markmiðið með þeim er að meta varmaburð frá jarðlögum í kringum Grundarfjörð. Með niðurstöðum þessara athugana verður hægt að meta hvernig verðskrá fyrir slíkar fjarvarmaveitur á köldum svæðum gæti litið út og hvort bygging og rekstur þeirra geti verið fýsilegur kostur hér á landi.“",
"innerBlocks": []
}
Skoða fjarvarmaveitu fyrir Grundarfjarðarbæ - Skessuhorn